Landskrifstofur Menntaáætlunar ESB

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

hnappur_nsn.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

FRÉTTAPUNKTAR LEONARDO STARFSMENNTAHLUTA MENNTAÁÆTLUNAR ESB DESEMBER 2009
 

Á DÖFINNI
 
Umsóknafrestir ársins 2010 og námskeið fyrir umsækjendur

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur  auglýst  eftir umsóknum um styrki í Menntaáætlun Evrópusambandsins  fyrir árið 2010.  Fyrir Leonardo verkefni eru umsóknarfrestirnir í febrúar og mikilvægt að hefja undirbúning verkefna strax í upphafi árs.

Meira...
 
 
Evrópusamvinna - kynning áætlana á Háskólatorgi 14. janúar nk.

Fulltrúar Evrópuáætlana á Íslandi standa aftur sameiginlega að kynningu, undir heitinu Evrópusamvinna, á þeim möguleikum sem Íslendingum bjóðast til að fá styrki til Evrópusamstarfsverkefna.

Meira...
 
 
FRÉTTIR

 
Styrkveitingar til yfirfærsluverkefna 2009

Í ár bárust 7 umsóknir um Leonardo yfirfærsluverkefni.  Að undangengnu mati sérfræðinga ákvað úthlutunarnefnd að styrkja 3 verkefni á vegum Myndlistaskólans í Reykjavík, Landbúnaðarháskóla Íslands  og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Heildarkostnaður vegna verkefnanna nemur um 175 milljónum króna en þar af styrkir Leonardó áætlunin verkefnin um 131 milljón.

Meira...
 
 
Um 19 milljónum króna (104.000 evrur) var úthlutað til Leonardo samstarfsverkefna

Núna var úthlutað stykjum til samstarfsverkefna í annað sinn.  Þessum verkefnaflokki hefur verið mjög vel tekið en og árið 2009 var annað árið sem boðið var upp á þennan verkefnaflokk.  Alls bárust 12 umsóknir og veittir voru styrkir til 6 fjölbreyttra og spennandi verkefna á sviði starfsmenntunar. Einu verkefni er stjórnað frá Íslandi.  
Nánari upplýsingar um verkefnin færðu hér:

Meira...
 
 
Keeping On Track - vel heppnað Evrópuverkefni

Í lok nóvember lauk verkefninu Keeping On Track - upgrading the skills of migrants, older workers and women in the healthcare, service and social sectors in Europe.  Landskrifstofa Menntaáætlunarinnar, Leonardó hlutinn, stýrði verkefninu sem var styrkt af Framkvæmdastjórn ESB en samstarfsaðilar komu frá 12 Evrópulöndum.  Markmið verkefnisins var að safna saman og meta afurðir Evrópuverkefna sem snúa að færniuppbyggingu fyrir 3 markhópa - innflytjendur, konur og eldra vinnuafl - sem starfa í starfsgreinum sem tengjast heilbrigðis- og félagsmálum og þjónustu.  Þessir hópar standa höllum fæti á vinnumarkaði víða í Evrópu.

Meira...
 
 
Leonardo tengslaráðstefna í Reykjavík 22.-24. október 2009

Landskrifstofur á Norðurlöndum  stóðu sameiginlega að tengslaráðstefnu mannaskipta- og samstarfsverkefna Leonardo þann 22. - 24. október í Reykjavík, íu samstarfi við Eystrasaltslönd. Ráðstefnugestir voru 100 talsins frá 21 Evrópulandi, þar af 60 Íslendingar.

Meira...
 
 
Ráðstefnan Úrræði til árangurs; menntun á vinnumarkaði í nútíð og framtíð 26-27.nóv. 2009

Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins héldu sameiginlega ráðstefnu á Hótel Hilton Nordica, dagana 26. - 27. nóvember 2009. Annars vegar var áherslan á þau úrræði sem hægt er að grípa til hér og nú til þess að bregðast við því ástandi sem nú ríkir á íslenskum vinnumarkaði og síðan var hugað sérstaklega að menntun á vinnumarkaði til frambúðar.

Meira...
 
 
Radiophonic Narration Leonardo yfirfærsluverkefni tilnefnt til verðlauna

Tvö lokaverkefni nemenda sem útskrifuðust í vor úr námi í heimildaþáttagerð fyrir útvarp, Radiophonic Narration (RANA) hafa verið tilnefnd til hinna virtu Prix Europa verðlauna í flokki heimildaþátta fyrir útvarp. Þetta eru þættirnir Ég nenni ekki að tala í dag eftir Þorgerði E. Sigurðardóttur og Angutit iloqqasut (A Circle of Men) eftir Henriette Rasmussen.

Meira...
 
 
Nýr vefur Landskrifstofu Menntaáætlunar Evrópusambandsins
www.lme.is
Landskrifstofa Menntaáætlunar Evrópusambandsins opnaði nýjan vef klukkan fimm þann fimmta nóvember 2009.  Markmiðið með nýrri heimasíðu var að skapa aðlaðandi og notendavænt aðgengi að upplýsingum fyrir umsækjendur og styrkþega.

Meira...
 
 
GLEÐILEG JÓL!

Starfsfólk Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB óskar öllu samstarfsfólki sínu gleðilegra jóla og farsældar á komandi ár.

 


 

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
LANDSKRIFSTOFA MENNTAÁÆTLUNAR ESB. lme@hi.is. Leonardo áætlunin - S. 525 4900. Erasmus, Comenius, Grundtvig áætlanirnar- S. 525 4311 NETFANG: LME@HI.IS

Ef þú vilt ekki fá þetta fréttabréf í framtíðinni eða ef þú hefur ábendingar varðandi fréttabréfið, vinsamlegast hafðu samband við Landskrifstofuna eða sendu tölvupóst á lme@hi.is