Einstaklingar sem vilja starfa í lögbundinni starfsgrein á Íslandi þurfa að sækja um leyfi til þess til stjórnvalda. Umsóknareyðublað á íslensku er hér. Application form in English is here.
Hvað er lögbundin starfsgrein?
Lögbundin starfsgrein er hvert það starf, sem til þarf leyfi, löggildingu eða aðra jafngilda viðurkenningu stjórnvalds, á grundvelli faglegrar menntunar og hæfis.
Hvaða störf eru lögbundin á Íslandi?
Lög um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi mæla fyrir um hvernig staðið skuli að viðurkenningu erlendrar menntunar. Samkvæmt þeim skal beina umsókn um viðurkenningu til mennta- og menningarmálaráðuneytis, nema öðruvísi sé kveðið á um tilhögun viðurkenningar í lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum. Í yfirlitinu að ofan er að finna upplýsingar um hvert beina skuli umsóknum um viðurkenningu fyrir einstakar starfsgreinar.
Í upplýsingum viðkomandi stjórnvalds kemur fram hvaða gögnum þarf að skila með umsókn um viðurkenningu.
Aðilar eiga þess kost að snúa sér til Solvit-miðstöðvar í heimalandi telji þeir sig ekki njóta fullrar sanngirni í mati.
Bæklingur á íslensku um viðurkenningu á starfsmenntun er hér.
Mat á menntun í löggiltum iðngreinum
Iðnaðarráðuneytið ber stjórnsýslulega ábyrgð á málum er varða viðurkenningu iðnréttinda, en hefur falið sýslumönnum að annast viðurkenninguna. Eitt meginskilyrði iðnréttinda hér á landi er að viðkomandi hafi aflað sér menntunar til iðnstarfa. Ef þau réttindi sem óskað er viðurkenningar á uppfylla skilyrði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2005/36/EB annast sýslumaður í því umdæmi er umsækjandi býr fullnaðarvinnslu málsins.
Eigi ákvæði tilskipunarinnar hins vegar ekki við um þau réttindi er um ræðir eða ef hún uppfyllir ekki að öllu leyti skilyrði tilskipunarinnar getur iðnaðarráðuneytið óskað eftir að mennta- og menningarmálaráðuneytið meti framlögð gögn. Tekur mennta- og menningarmálaráðuneytið þá afstöðu til þess hvort unnt sé að viðurkenna menntun umsækjanda engu að síður og byggist matið á samanburði milli framlagðra gagna og íslenskrar námskrár á viðkomandi sviði, sbr. ákvæði 20. gr. reglugerðar um sveinspróf nr. 698/2009.
Teljist aðili uppfylla skilyrði um menntun til starfa í löggiltri iðngrein hér á landi fær hann umsögn þar að lútandi frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Ekki er þá gerð krafa um frekara nám til þess að starfa hérlendis á umræddu sviði, hins vegar þarf viðkomandi að afla sér atvinnuleyfis hjá Vinnumálastofnun ef hann kemur frá landi utan EES-svæðisins.
Upplýsingar fyrir þá sem hyggjast halda utan og vilja afla viðurkenningar á íslenskri starfsmenntun.
Tenglar: tilskipunin á íslensku og ensku. Vefur ESB um viðurkenningu prófskírteina.
Stjórnvöld í öðrum ríkjum.
Austurríki




