„Miðstýrt“ vísar til þess að umsjón með þessum verkefnum er í höndum framkvæmdastjórnar ESB en ekki Landskrifstofu. Hlutverk landskrifstofu er að miðla upplýsingum og aðstoða umsækjendur eins og hægt er.
Framkvæmdastjórn ESB hefur falið framkvæmdaskrifstofu ESB um mennta- og menningarmál (Education, Audiovisual and Culture Executive Agency, EACEA) að sjá um framkvæmd miðstýrðra áætlana.
Markmið þróunarverkefna í Leonardó eru að bæta kennaramenntun, auka færni fólks sem starfar á sviði menntunar og gæði skólastarfs almennt.
Sérstök áhersla er lögð á eftirtalin atriði:
- Eflingu námsáhuga
- Þróun kennsluaðferða
- Skólastjórnun
- Tungumálakennslu
- Lestrarkennslu
- Rafrænar kennsluaðferðir
Hægt er að nálgast ítarlegri lýsingu og hverju áherslu atriði í „Call for proposal“, sjá bls 8 & 9.
Ef verkefnishugmynd passar ekki að þessum áhersluatriðum gæti hún fallið að markmiðum einnar af þveráætlununum sem ná til allra skólastiga, en þær eru:
- Key Activity 1 – Nýsköpun og stefnumótun
- Key Activity 2 – Upplýsingatækni
- Key Activity 3 – Tungumál
- Key Activity 4 – Miðlun og hagnýting upplýsinga
Hægt er að nálgast ýtarlegri lýsingu á hverri áætlun á undirsíðu hverrar ætlunar (tenglar hér að ofan) og líka í
„Call for proposals“, sjá bls 27-34
Umsóknir og eyðublöð fyrir þessar áætlanir er að finna á vef EACEA
Sjá undir liðnum „Information for applicants“ og velja síðan viðeigandi ár.
Athugið að umsóknarform eru ekki endilega aðgengileg með löngum fyrivara.
Yfirlit yfir næstu umsóknarfresti í vísanir í nýjustu útgáfur og fylgiskjöl við „call for proposals“ er hægt að nálgast hér.
Þróunarverkefni (Multilateral projects for Development of innovation) er samheiti tveggja verkefnaflokka; tilraunaverkefna og netverkefna.
Umsóknum þessara verkefnaflokka er skilað beint til Evrópusambandsins. Mat og styrkúthlutanir fara fram í Brussel og er stjórnað af Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Upplýsingar, umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á heimasíðu Education, Audiovisual & Culture Executive Agency.
Tilraunaverkefni (Development of Innovation)
Tilraunaverkefni eru verkefni sem fela í sér þróun nýjunga í starfsmenntun, svo sem nýtt námsefni eða nýjar leiðir til kennslu. Markmiðið er að auka gæði þjálfunar- og menntunarkerfa og er mikil krafa gerð til þess að verkefnin feli í sér raunverulegar nýjungar í starfsmenntun.
Í handbók fyrir umsækjendur stendur um tilraunaverkefni:
Leonardo 'Development of Innovation' are transnational co-operation projects that aim to improve the quality of training systems through the development of innovative contents, methods and procedures within vocational education and training. Innovation is a matter of doing new things or finding new ways of doing familiar things...something new is developed (contents, methods, procedures etc.) as the end result of the project...
Lengd verkefna: Hámark 2 ár
Stuðningur: Getur numið allt að 75% prósent af samþykktum kostnaði.
Styrkur: allt að 250 þúsund evrur á ári
Lágmarksfjöldi þátttökulanda eru 3 lönd, þar af a.m.k eitt Evrópusambandsland.
Fjöldi verkefna styrkt á ári: allt að 10 verkefni árið 2007
Netverkefni (Thematic Networking)
Á hverju ári er veittur stuðningur til nokkurra Fjölþjóðlegra netverkefna sem hafa það að markmiði að safna saman upplýsingum, vinna úr þeim og byggja upp evrópsk upplýsinganet innan ákveðinna fagsviða í starfsmenntun.
Í handbók fyrir umsækjendur stendur um netverkefni:
"The aims of Leonardo da Vinci Thematic Networks are to strengthen the link between the various 'actors' involved in vocational training, to improve the quality, Euripean dimension and visibility of activities or issues of common interest in the field of vocational education and training, VET. "
In particular the Thematic Networks aim at:
- Assembling, distilling and building on European expertise and innovatory approaches
- Improving the analysis and anticipation of skill requirements
- Disseminating the network outputs and project results throughout the Union in the appropriate circles.
Lengd verkefna: allt að 3 ár
Stuðningur: allt að 75% prósent af samþykktum kostnaði.
Styrkur: allt að 150 þúsund evrur á ári
Lágmarksfjöldi þátttökulanda eru 3 lönd, þar af a.m.k eitt Evrópusambandsland.
Fjöldi verkefna styrkt á ári: allt að 10 verkefni árið 2007






