MANNASKIPTAVERKEFNI (mobility projects)
veita fólki tækifæri til að afla sér reynslu og þekkingar innan síns fagsviðs í öðrum Evrópulöndum. Um er að ræða heimsókn eða dvöl til lengri eða skemmri tíma þar sem markmiðið er að efla hæfni þátttakenda með starfsþjálfun og námsferðum og/eða afla þekkingar til að deila með öðrum innan skóla, stofnana og fyrirtækja. Ávinningur mannaskipta felur meðal annars í sér nýja verkfærni, tungumálaþjálfun og viðskiptasambönd til framtíðar og þátttaka í mannaskiptaverkefni getur aukið starfsmöguleika ungs fólk hvar sem er í Evrópu.
Skilyrði
Samstarfsaðilar verða að vera frá tveimur löndum hið minnsta, þar af verður annað landið að vera aðili að Evrópusambandinu. Einstaklingar geta ekki sjálfir sótt um styrki, heldur þarf lögaðili, svo sem skóli, vinnustaður, stéttarfélag, eða fagfélag að ábyrgjast umsóknina.
Þátttaka
Mannaskiptaverkefni eru mikilvægur hluti Leonardo áætlunarinnar og hafa fjárveitingar til þess hluta farið vaxandi. Markmið Menntaáætlunar ESB er hvortveggja að bæta gæði og auka fjölda þátttakenda í mannaskiptaverkefnum. Á tímabilinu 2007-2013 er stefnt að því að að minnsta kosti 80.000 evrópskir einstaklingar, aðallega ungmenni, fái árlega tækifæri til starfsþjálfunar erlendis. Undanfarin ár hafa um 150 -200 Íslendingar hlotið styrki úr Leonardó áætluninni til manna- og stafsmannaskipta árlega.
Gæði í mannaskiptum
Mikil áhersla er lögð á gæði mannaskipta og eru eftirfarandi atriði í umsókn mikilvæg í því sambandi, sérstaklega þegar um lengri dvöl er að ræða og unga þátttakendur. Í flestum tilfellum eru það mannaskiptaverkefni (verkefnaflokkarnir IVT og PLM)
- Undirbúningsnámskeið í tungumálum og menningarfærni.
- Skýr lýsing á markmiðum, innihaldi og lengd dvalar.
- Lýsing á kennslu og þjálfun og hlutverkum og ábyrgð allra hlutaðeigandi
- Mat á færni sem þátttakandi öðlast í starfsþjálfuninni.
Annað hvert ár eru gæðaviðurkenningar veittar fyrir fyrirmyndar mannaskiptaverkefni.
Heimasíða Evrópusambandsins og leiðbeiningar til umsækjenda






