Auk þess að styrkja stúdenta og starfsfólk háskóla til lengri eða skemmri dvalar erlendis styrkir Erasmus áætlunin einnig stærri samstarfsverkefni evrópskra háskóla.
Sjá nánari lýsingu hverjum lið á undirsíðum.
Grunnskilyrði:
- Almennt gildir að í það minnsta þrír háskólar frá sitt hvoru landinu taki þátt.
- Mjög æskilegt er að það séu í það minnsta fjórir þátttakendur í verkefni.
Mögulegar styrkupphæðir og lengd verkefna:
- Styrkir til viðamikilla samstarfsverkefna geta numið allt að 150.000 Evrum á ári. Styrkir geta í vissum tilvikum orðið hærri en eru oftast mun lægri.
- Verkefni geta verið til allt að þriggja ára.
Atriði sem gott er að hafa í huga þegar sótt er um:
- Markmið verkefnis þarf að vera mjög skýrt og tilgangur þess rökstuddur t.d. með vísun til þess sem hefur eða hefur ekki verið gert á viðkomandi sviði.
- Hlutverk hvers þátttakanda þarf að vera skýrt.
- Verkaskiptin á milli þátttakenda þarf að vera vel skilgreind og dreifast nokkuð „jafnt“ á milli þeirra. Umsókn þar sem umsækjandi sér um afgerandi hluta af vinnunni en samstarfsaðilar eru í aukahlutverkum er ekki líkleg til að fá samþykki þó svo sjálft verkefnið sé gott þar sem ekki er um virkt samstarf að ræða.
- Huga þarf vel að kostnaðaráætlun.


