Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Study_in_Europe_logo
Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

 

 

 

Erasmus Mundus 2009-2013

Erasmus Mundus áætluninni er ætlað að bæta gæði háskólanáms í Evrópu og efla tengsl við lönd utan Evrópu.
Takmarkið er að Evrópusambandslöndin verði eftirsóttur áfangastaður fólks sem sækist eftir hágæða námi og námsumhverfi.
 

Áætlunin skiptist í þrjár aðgerðir (Actions)

  • Aðgerð 1 – Erasmus Mundus meistara og doktorsnám. Samstarfs minnst þriggja evrópskra háskóla.

  • Aðgerð 2 – Samstarf við háskóla utan Evrópu. Samstarf minnst fimm evrópskra háskóla.

  • Aðgerð 3 – Kynning á evrópska háskólasvæðinu. Samstarfs minnst þriggja evrópskra háskóla.

Upphæð til ráðstöfunar tímabilið 2009-2013

Samþykkt hefur verið (Decision No 1298/2008/EC) að veita 470 milljónum Evra í aðgerðir 1 & 2 tímabilið 2009-2013. Áætlað er að 460 milljónir Evra fari í aðgerð 2. Í heildina er því um að ræða tæplega einn milljarð Evra.
 

Umsjón með áætluninni

Framkvæmdastjórn ESB hefur falið framkvæmdaskrifstofu ESB um mennta- og menningarmál (Education, Audiovisual and Culture Executive Agency, EACEA) umsjón með Erasmus Mundus.  Öll formleg umsjón (umsóknir, mat umsókna, samningsgerð) er á höndum þessarar skrifstofu.

Hlutverk Landskrifstofu er að miðla upplýsingum um áætlunina og aðstoða umsækjendur eins og kostur er.