Rafrænar umsóknir 2010 og handbók
Eyðublöð birtast hér jafnóðum og þegar þau berast. Hér fyrir neðan er hægt að sækja rafræn umsóknareyðublöð fyrir árið 2010. Einnig er þar hægt að sækja handbók (á ensku) um notkun og innfyllingu eyðublaðsins.
Athugið að ekki er nóg að senda umsóknir rafrænt. Þær verður að prenta út, undirrita og senda með fylgigögnum í tvíriti (frumrit og eitt afrit) til Landskrifstofu fyrir lok umsóknarfrests. Póststimpill gildir.
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB
Comenius
Háskólatorgi
101 Reykjavík
-
Handbók um notkun rafrænu eyðublaðanna 2010
(Acrobat PDF 228 K)
-
Rafræn umsókn fyrir evrópska aðstoðarkennara - skólar/einstaklingar
(Acrobat PDF 1369 K)
-
Rafræn umsókn um endurmenntun kennara (IST)
(Acrobat PDF 1728 K)
-
Mat á umsóknum - aðstoðarkennsla (einstaklingar)
(Acrobat PDF 47 K)
-
Mat á umsóknum - aðstoðarkennsla (skólar)
(Acrobat PDF 47 K)
ATH nýtt fyrir 2010 - Við lok ferðar ber að skila inn lokaskýrslu sem ykkur er send með tölvupósti. Með skýrslunni þarf að fylgja afrit af farseðli og kvittun fyrir námskeiðsgjaldi.
ATH! Afar mikilvægt er að vista (Save) umsóknarformið strax í tölvunni ykkar áður en þið farið að fylla inn í það.
Leiðbeiningar fyrir umsóknareyðublöð - eForm
Rafræna umsóknarformið er pdf skjal sem hægt er að opna og vinna með í Adobe Reader í útgáfu 8.1 eða nýrri. Adobe Reader er ókeypis forrit og er hægt að sækja það á www.adobe.com
ATH! Kóðinn fyrir íslensku Landskrifstofuna (Identification) er IS1 LLP (LME)
- Umsækjandi verður að vera nettengdur til að sækja og senda inn rafræna umsóknareyðublaðið.
- Vistið eyðublaðið í tölvunni ykkar (velja Save). Það þarf ekki að vera nettengdur til að vinna með umsóknina í tölvunni.
- Til að athuga hvort eyðublaðið sé rétt útfyllt, þarf að smella á Validate-hnappinn. Ef ekki hefur verið fyllt rétt út, kemur upp ábending um það.
- Ekki er hægt að senda inn umsóknina fyrr en hægt er að "Validera" allt eyðublaðið. Þegar því er lokið og umsóknin telst gild, skal smella á Submit Online - hnappinn. Þá er rafræna umsóknin send (tölvan þarf að vera nettengd). Ef sendingin heppnast opnast staðfesting á því ásamt frekari leiðbeiningum. Prentið þessa staðfestingu út og sendið ásamt umsókninni, útprentaðri í tveimur eintökum til Landskrifstofu (sjá póstfang á forsíðu umsóknar).
- Ath! Það er prentaða útgáfa umsóknarinnar sem er gild. Ef umsókn er breytt á síðari stigum (áður en umsóknarfrestur rennur út) og send aftur inn rafrænt, þarf að prenta umsóknina aftur út og undirrita og láta viðkomandi verkefnisstjóra vita.
- Vinsamlegast leitið fyrst upplýsinga í handbókinni um notkun rafrænu eyðublaðanna ef þið lendið í vandræðum.
- Ef ykkur vantar frekari aðstoð getið þið haft samband við Ástu Vigdísi í síma 525 4151 eða með tölvupósti: astavig(hjá)hi.is
Leiðbeiningar fyrir skýrslugerð
Endurmenntun kennara
Styrkhafi skal skila lokaskýrslu um endurmenntunarnámskeið innan fjögurra vikna frá því að heim er komið. Athugið: Lokaskýrsluform verður sent til þátttakenda í tölvupósti.
Með skýrslunni þarf að senda inn frumrit af flugmiða og öðrum farseðlum/kvittunum sem tengjast ferðakostnaði. Það þarf ekki að framvísa reikningum vegna uppihaldskostnaðar erlendis. Styrkur vegna uppihaldsskostnaðar kennara hjá Landsskrifstofu Menntaáætlunar ESB á Íslandi hefur verið á bilinu 50% – 75% af uppihaldstaxta Evrópusambandsins samanber töflur aftast í umsókn.
Fara sem aðstoðarkennari
Eftir heimkomu þarf að skila inn öllum ferðakvittunum til Landsskrifstofu, svara „evaluation“ spurningalistanum og taka saman stutta reynslusögu um dvölina,
Töflur vegna uppihaldstaxta
Hér má finna töflur sem gefnar eru út af Evrópusambandinu yfir hámarksstyrk til uppihalds. Til uppihalds telst kostnaður vegna gistingar, fæðu og ferða meðan á dvöl stendur. Ekki þarf að skila kvittunum vegna uppihaldskostnaðar. Vinsamlegast athugið að ártalið í töflunum vísar til þess árs sem sótt var um styrk, ekki hvenær ferðin var farin.



