Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

 

 

 

 

Góð leið til að kynnast menntun og starfsþjálfun annars staðar í Evrópu.

Námsheimsóknirnar eru ein af þveráætlun Menntaáætlunarinnar og er þeim ætlað að styðja við stefnumótun og samstarf í Evrópu með tilvísun í Lissabon ferlið, Menntun og þjálfun 2010, Bologna og Kaupmannahafnar yfirlýsingarnar.

Námsheimsóknir til Evrópu eru áhugaverður kostur! 
Áætlun um námsheimsóknir (áður CEDEFOP námsheimsóknir) er fyrir stefnumótendur, þá sem taka ákvarðanir og sérfræðinga á sviði menntunar og almennrar starfsþjálfunar.  Áætlunin felst í því, að boðið er í 3-5 daga námsheimsóknir til 31 Evrópuríkis, þar sem menntun er kynnt út frá fyrirfram ákveðnum sjónarhóli.  Árangursríkar og stefnumótandi aðgerðir eru kynntar ásamt sýnishornum af góðri framkvæmd í öðrum ríkjum. Þá gefst einnig kostur á því að hitta starfssystkini hvaðanæva að í Evrópu.   Námsheimsóknir eru góður vettvangur  til að mynda ný tengslanet til framtíðar.

Hverjir geta tekið þátt í heimsóknunum?

Fulltrúar launþegasamtaka og vinnuveitenda geta tekið þátt í námsheimsóknum. Einnig geta stjórnendur og umsjónarmenn þjálfunar í litlum og meðalstórum fyrirtækjum, verslunarstjórar, fulltrúar verslunar- og viðskiptaráða þátttökuríkja, stjórnendur í starfsmenntun, hvort heldur hún er einkarekin eða opinber, tekið þátt.

 Hvaða svið er hægt að kynna sér ?
• Framfarir hvað varðar aðgang, jafnræði, gæði og skilvirkni í menntun og þjálfun
• Menntun og þjálfun sem miðar að því að styrkja stöðu einstaklinga á vinnumarkaði
• Framkvæmd sameiginlegra evrópskra staðla, meginreglna og ramma fyrir símenntun
• Stefnur og viðfangsefni í stefnumótun símenntunar

Hvert er hægt að fara?
Boðið er upp á námsheimsóknir í 27 aðildarríkjum ESB, á Íslandi, í Liechtenstein, Noregi og Tyrklandi. Í flestum heimsóknum er töluð enska, en einnig er hægt að velja heimsóknir þar sem töluð er þýska, franska eða spænska.

Upplýsingar um námsheimsóknirnar
Gefið er út yfirlitsrit með kynningu á öllum þeim nær 400 heimsóknum sem standa til boða á næsta ári.

Kostnaður?
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB veitir styrki til námsheimsókna, reiknað er með styrkur nægi fyrir ferð og uppihaldi að mestu.

Umsóknarfrestir og umsóknir:
Umsóknarfrestur fyrir tímabilið september 2010 – febrúar 2011 er 31. mars 2010, og fyrir tímabilið mars 2011 – júní 2011 er umsóknarfrestur 15. okóber 2011.
Fylla þarf út eyðublað á netinu og senda útprentun af því til Landsskrifstofu Menntaáætlunarinnar. Yfirlitsritið og nánari upplýsingar fást á http://studyvisits.cedefop.europa.eu/  og hjá Ástu Sif Erlingsdóttur, netfang: astasif hja hi.is