Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Study_in_Europe_logo
Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

 

 

 

Grikkland_m_4saeti_grein

Stúdentaverkfall og skriðdrekaskrúðganga í Grikklandi

Kvöldið sem ég lenti í Grikklandi til að hefja skiptinám er mjög eftirminnilegt, það var skrítið að sjá gríska letrið á öllum skiltunum, og hitinn var lygilegur í febrúar miðað við Ísland sem bar nafn með rentu þennan febrúarmánuð. Það sem var þó eftirminnilegast þetta kvöld var að fjölskylduvinur okkar sem sótti mig á flugvöllinn tjáði mér það að það væri verkfall í gangi í  öllum skólum landsins.

Ég hugsaði til kennararverkfallsins sem ég lenti í menntaskóla og mig rámaði í að það hefði ekki verið svo langt og bara skemmtilegt í minningunni. En þá upplýsti hann mig um að þetta væri nemendaverkfall, nemendurnir voru ósáttir við lagasetningu sem fæli í sér að einkareknir skólar yrði leyfðir líka og höfðu þeir hertekið skólana og læst sig inn í þeim frá því í desember eða í um tvo mánuði!

Næstu vikur voru svo mjög undarlegar, á milli þess sem ég skoðaði mig um í Aþenu og reyndi að læra grísku, fór ég og fylgdist með mótmælagöngum nemenda, þvílíkt mannhaf hafði ég aldrei séð fyrr og þeir stóðu saman, mörg hundruð manns, stóðu í hnapp og sungu ,,Give peace a change" og hrópuðu slagorð sem voru ekki enn á mínu valdi að skilja en ég þóttist skilja inn á milli í þeim miður fagra hluti um menntamálaráðherran sem var ekki vinsælasta konan í Grikklandi á þessum tíma. Á kvöldin færðist svo fjör í mótmælin og þá var ég komin í öryggið fyrir framan sjónvarpstækið og horfði á bensínsprengjur og táragas fljúga milli óeirðarlögreglu og mótmælenda.

Aþena er mjög merkileg að því leyti að þú labbar kannski framhjá Starbucks og Mc Donalds og beint í flandrið á mörg hundruð ára gömlum fornminjum, formunirnir eru af illri nauðsyn fléttaðir inní nútímavædda borg og yfir þessu öllu saman gnæfir Akropolis.

Við vorum boðuð á fund með skólayfirvöldum á kaffihúsi, enda skólinn enn rammlæstur að innan og nemendur ekkert á leiðinni að bakka. Þá komumst við í samband við nokkra kennara sem voru til í að láta okkur fá sérverkefni svo við myndum ekki missa niður önnina einingalega séð.

Á meðan á verkfallinu stóð héldum við skiptinemarnir hópinn og ferðuðumst talsvert um Grikkland og grísku eyjarnar. Loks var lagsetningin samþykkt og tilgangur verkfallsins í raun ekki neinn og var því hætt, við mættum einn dag í skólann en þá var komið að 2 vikna páskafríi sem þeir tóku þrátt fyrir að vera búnir að missa rúmar 3 mánuði af skólaárinu!

Páskunum eyddi ég með þýskri stelpu sem var líka skiptinemi í mínum skóla, í Spörtu hjá fjölskyldu grískrar vinkonu okkar. Það var mjög áhugavert að fá að eyða páskunum með innfæddum, smakka gríska páskabrauðið og upplifa andrúmsloftið í gegnum ekta Grikki. Grikkir eru svo gestristnir og hlýjir og við borðuðum nóg af ljúffengum grískum mat þessa viku til að endast okkur fram að jólum! Við fórum þrisvar í kirkju á þessum dögum enda Grikkir mjög trúræknir en það var nokkuð sérstakt að sjá hermenn með alvæpni en þeir báru tákn fyrir lík Krists út úr kirkjunni og komandi frá herlausri þjóð var nokkuð sérstakt að sjá herinn vera svona samtvinnaðann jafn hátíðlegri stundu.

Ég var vart búin að jafna mig á hernum frá Þjóðhátíðadeginum þeirra sem hafði verið aðeins fyrr, 25. mars en þá vaknaði ég af værum blundi við að skriðdrekaskrúðganga keyrði framhjá glugganum mínum og húsið lék á reiðiskjálfi, allar rúðurnar titruðu og ég hélt að minn hinsti dagur væri runnin upp og þorði ekki fram úr. Forvitnin var þó óttanum yfirsterkari og ég skjögraði skjálfandi að glugganum. Mér til mikillar furðu blasti þar við mér skrúðganga og glöð börn veifandi til hermannanna í skriðdrekunum sem brostu sínu blíðast á móti, skrúðgangan samanstóð af öllum gríska flotanum og meira að segja kafararnir í hernum þurftu að sýna sig í fullum skrúða þrátt fyrir að vorið væri vel á veg komið og hitinn um 18 gráður og heiðskýrt og sól, mikið fann ég til með þeim.

Það var hálfgert sjokk að byrja svo í skólanum loksins, á göngunum var iðullega spiluð mjög há rokktónlist og leyfilegt var að reykja nær allstaðar, og er maður þræddi reykmettaða gangana í leit að stofunni sinni leið manni meira eins og á skemmtistað rétt fyrir lokun en menntastofnun! Kennsla fór fram á grísku en við hengdum okkur yfirleitt á einn nemanda í hverjum bekk sem vildi æfa si í ensku og þýddi hann jafnóðum fyrir okkur eða kennararnir sögðu okkur til. Það kom sér vel að vera að læra myndlist því listin er svo alþjóðleg að við áttum auðvelt með að vinna verkin okkar. Vegna verkfallsins var nokkuð lítið eftir af önninni er hér var komið við sögu en það var svolítið skrítið að eftir um mánaðar kennslu vegna verkfallsins þurftum við að gera svo vel að vinna það upp sjálf og skila öllu í annarlok sem var rétt handan við hornið.

Það var ekki loftræsting í íbúðinni okkar og þegar ég var heima að læra fyrir lokaskilin, nótt sem dag, gekk yfir Grikkland mesta hitabylgja síðan mælingar hófust. Hitinn var óbærilegur en það þýddi ekkert annað en að bíta á jaxlinn, þurrka svitapollinn sem hafði myndast á bókinni af og klára þetta. Það hafðist að lokum og um leið og allar einingar voru komnar í hús fórum við með næsta skipi á flakk um grísku eyjarnar enda varla líft orðið í Aþenum vegna hita og um 114 skógareldar geisuðu bara í nágrenni höfuðborgarinnar!

Ég lenti svo á Íslandi í sumarlok, með sólbruna, yfirvigt, ótal minningar og ómetanlega reynslu.

Ég held að þó ég hefði vitað af verkfallinu fyrirfram hefði ég samt farið út, maður lærir meira en af náminu úti, lærir að standa á eigin fótum og að skilja og bera virðingu fyrir öðrum siðum og menningu.

Brynja Björnsdóttir
 
 

_________________________________________________________________________

1. sæti: Ása Helga Hjörleifsdóttir / Paris, Paris, sjá grein.
2. sæti: Magnús Sigurðsson / á fljótabáti upp Rín, sjá grein.
3. sæti: Hildur Björgvinsdóttir / skógar skrifræðis og pálmatrjáa í Montpellier, sjá grein.
4-5. sæti: Brynja Björnsdóttir / Stúdentaverkfall og skriðdrekaskrúðganga í Grikklandi, sjá grein.
4-5. sæti: Karítas Diðriksdóttir / My Semester Abroad, sjá grein.