Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

Bologna_logo_f_haegri


europass_logo.jpg

euroguidance_logo.jpg

banner_vertical.gif

Íslenskir Bologna kynningarfulltrúar 2009-2011

  • Sigurður Kári Árnason, ska2(a)hi.is, Stúdentaráð Háskóla Íslands, fulltrúi stúdenta.
  • Gísli Fannberg, gf(a)hi.is, verkefnisstjóri við NARIC/ENIC upplýsingaskrifstofu Háskóla Íslands.
  • Sigrún Magnúsdóttir, sigrun(a)unak.is, gæðastjóri Háskólans á Akueyri.
  • Steinn Jóhannsson, steinn(a)ru.is, forstöðumaður stoðsviðs/kennslusviðs Háskólans í Reykjavík.
  • Þorbjörg Valdís Kristjánsdóttir, tvk(a)lbhi.is, alþjóðafulltrúi Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri.
  • Guðrún Geirsdóttir, gudgeirs(a)hi.is, lektor í kennslufræðum, félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands.
  • Anna Guðmundsdóttir, ang3(a)hi.is, verkefnastjóri á Kennslumiðstöð Háskóla Íslands

Hægt er að hafa samband við Alþjóðaskrifstofuna og skipuleggja heimsókn bolognafulltrúa til menntastofnana með kynningar og fundarþátttöku í huga.

Verkefnisstjóri hjá Alþjóðaskrifstofu er Óskar E. Óskarsson, s. 525 5852, netfang: oeo(a)hi.is

Helstu verkefni Bologna kynningarfulltrúa tímabilið 2009-2011

  • Sex til tíu vinnustofur/námskeið í háskólum á vegum kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands fyrir kennara og aðra sem koma að skipulagningu námsleiða eða einstakra námskeiða. Vinnustofur munu fjalla um gerð hæfniviðmiða og önnur atriði eftir þörfum hverju sinni. Hægt er að hafa samband og óska eftir námskeiði.
  • Tveir til þrír stefnumótunar og stöðufundir. Fundir Bologna kynningarfulltrúa með helstu stjórendum háskóla sem bera ábyrgð á innleiðingu Bologna kerfisins og fulltrúum menntamálaráðumeytis.
  • Hugsanlega ein opin landsráðstefna með erlendum fyrirlesurum
  • Vinnustofa um gerð „Diploma Supplement Label“ umsókna í nóvember 2009. Gert ráð fyrir að allir íslenskir háskólar sendi inn umsókn.
  • Vinnustofa um gerð „ECTS Label“ umsókn á haustmisseri 2010.
  • Útgáfa (líklega mest rafrænt) á kennsluefni fyrir kennara og aðra er málið varðar unnið af kennslumiðstöð Háskóla Íslands
  • Útgáfa á kynningarbæklingi um stöðu Bologna ferlisins á Íslandi.
  • Þátttaka Bologna kynningarfulltrúa á alþjóðlegum Bologna ráðstefnum.
  • Þátttaka Bologna kynningarfulltrúa í norrænu Bologna verkefni


Markmið Bologna kynningarfulltrúanna er að mæta eftirspurn innan háskólasamfélagsins eftir fræðslu og kynningu á Bologna ferlinu og innleiðingu þess á Íslandi. Allar athugasemdir og tillögur að nýjum eða breyttum verkefnum hópsins eru vel þegnar.