Comenius er hluti nýrrar menntaáætlunar Evrópusambandsins og tekur til leik-, grunn- og framhaldsskóla. eTwinning var sett á laggirnar í janúar 2005 en frá og með síðustu áramótum heyrir hún undir Comenius.
Ávinningur af skráningu Comeniusverkefnis í eTwinning
Mörg þeirra verkefna sem unnin eru undir merkjum Comeniusar líkjast því starfi sem verið er að gera undir merkjum eTwinning, þar af leiðandi er ekkert því til fyrirstöðu að skrá Comeniusverkefnið líka sem eTwinning verkefni. Ávinningurinn af því fyrir kennara er sá að með tvöfaldri skráningu verkefnisins kemst kennarinn inn í stuðningskerfi eTwinning sem meira en 25.000 skólar í Evrópu eru aðilar að, auk þess að fá gjaldfrjálsan aðgang að ýmsum veftækjum og tólum.
Með skráningu Comenius-verkefna í eTwinning má einnig halda sambandi við samstarfsaðila eftir að Comeniusarverkefni lýkur -- enda eru engin tímatakmörk á samstarfi í eTwinning.
Upplýsingar
Upplýsingar um eTwinning og skráningu verkefna er að finna á stikunnni til vinstri.
Tengiliður eTwinning er Guðmundur I. Markússon, s. 525 58454, gim(hjá)hi.is.



