Umsóknarfrestir Comenius 2012

Endurmenntun,
16. jan, 30 apríl, 17 sept
Aðstoðakennarar, 31. jan
Samstarfsverkefni 21. feb
Svæðasamstarf, 21. feb
Nemendaskipti, 1 des


Comenius bæklingur




Upplýsingar á vef EACEA


 

Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

Ráðgjafanefnd um uppeldisfræði

Á vegum eTwinning starfar ráðgjafanefnd sérfræðinga um uppeldisfræði, Pedagogical Advisary Group (PAG). Meðlimir nefnarinnar funda reglulega með það markmiði að finna auma bletti og leggja til lausnir er varða uppeldisfræðilega hlið skólasamstarfs.

Á vegum nefndarinnar hafa komið út þrjár aðgengilegar og hnitmiðaðar skýrslur í ritröðinni Reflections on eTwinning. Hægt er að hlaða þeim niður með PDF-sniði hér fyrir aftan:

PAG - Collaboration and eTwinning 2006 (.pdf, 450 kb)

PAG - Pedagogical Issues in eTwinning 2006 (.pdf, 318 kb)

PAG - Cultural Understanding and Integration 2007 (.pdf, 1453 kb)
 

Uppeldisfræðileg aðstoð fyrir kennara

Sérstakt hjálparborð hjá miðstöð eTwinning er tileinkað uppeldisfræði og samanstendur það af kennurum sem hafa mikla reynslu af skólasamstarfi í Evrópu. Öllum kennurum er velkomið að hafa samband með spurningar um hvaðeina er varðar uppeldisfræðilega hlið skólasamstarfs og verkefnavinnu.

 

Katerina Bavorova

Katerina er frá Tékklandi og hefur starfað hjá Evrópska skólanetinu síðan 2004. Hún hefur tíu ára reynslu af kennslu tungumála í ýmsum skólum og talar fjölda tungumála (ensku, frönsku, ítölsku, slóvakísku og tékknesku). Hún hefur mikla reynslu sem kennari af evrópsku skólasamstarfi og notkun upplýsingatækni.

Netfang: katerina.bavorova(hjá)eun.org
Sími: +32 2 790 75 64

Sylvia Binger

Sylvia er menntuð sem lista- og enskukennari og hefur langa reynslu af kennslu í framhaldsskólum í Þýskalandi. Sylvia hefur starfað hjá Evrópska skólanetinu síðan 2004. Hennar sérsvið snýr að stjórnunar- og tæknilegum hliðum skólasamstarfs. Hún talar ensku, ítölsku og þýsku.

Netfang: sylvia.binger(hjá)eun.org
Sími: +32 2 790 75 87

Silvia Spinoso

Silvia hefur starfað hjá Evrópska skólanetinu síðan 2003. Hún er verkefnisstjóri hjá Puntoedu Riforma, kennaranám á vegum INDIRE á Ítalíu. Silvia talar ensku og ítölsku.

Netfang: silvia.spinoso(hjá)eun.org
Sími: +32 2 790 75 65