Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

Bologna_logo_f_haegri


europass_logo.jpg

euroguidance_logo.jpg

banner_vertical.gif

Europass tungumálapassinn er skjal fyrir einstaklinga til þess að skrá tungumálakunnáttu sína og menningarfærni. Honum er ætlað að stuðla að því að þeir auki færni sína í því að eiga samskipti við fólk á öðru tungumáli en sínu eigin. Þá er vonast til þess að fólk læri fleiri tungumál og öðlist aukna alþjóðlega menningarreynslu.

Europass tungumálapassinn (ELP) sýnir fram á færni einstaklinga á skýran, gegnsæjan og traustvekjandi hátt. Hann hjálpar fólki við að komast að sinni raunverulegu færni í einu eða fleiri tungumálum og við að upplýsa aðra um þessa færni.

Öll færni er metin, hvort sem þekkingar er aflað innan eða utan hins formlega skólakerfis.

Sýnishorn af tungumálapassa (.doc, 81 kb)

Hér er slóðin inn á síðu CEDEFOP.  Þar eru öll Europass skjölin vistuð á fjölmörgum tungumálum.

Hér er hraðleið að gerð tungumálapassa á íslensku
 

Vefútgáfa Evrópskrar tungumálamöppu, European Language Portfolio

Menntamálaráðuneyti hefur gert vefútgáfu hinnar Evrópsku tungumálamöppu, (the European Language Portfolio), fyrir grunn- og framhaldsskólastig og hefur hún hlotið vottun frá Evrópuráðinu í Strassborg.
Efnið var unnið í samvinnu við tilraunaskóla hér á landi og nefnd sérfræðinga um tungumálakennslu á vegum ráðuneytisins. Mappan er í þremur hlutum sem eru tungumálapassi, námsferilskrá og safnmappa. Ritstjórar eru Aldís Yngvadóttir og Erna Árnadóttir.

Efnið er vistað á vef Menntagáttar (sláið inn leitarorðið tungumálamappa)
og Námsgagnastofnunar.

A tungumálavef Evrópusambandsins og á vef Evrópuráðsins má finna frekari upplýsingar.