Hér eru tenglar sem vísa á bæklinga um Comenius fyrirmyndarverkefni.
- 2009 Comenius Success Stories, á ensku (.pdf, 543 kb)
- 2008 Comenius Success Stories, á ensku (.pdf, 1,46 mb)
- 2007 Comenius Success Stories, á ensku (.pdf, 791 kb)
Comeniusar fyrirmyndarverkefni 2008-2010
Garðaskóli
International cook book-food, culture and health
Markmið samsstarfskólanna var að gefa út sameiginlega uppskriftarbók, sem gæfi góða mynd af matarmenningu þátttökuþjóðanna. Nemendur söfnuðu saman hefðbundnum og dæmigerðum uppskriiftum fyrir sitt sveitarfélag. Nemendur prufuðu margar uppskriftir og völdu síðan 10 sem þeim fannst endurspegla matarmenningu sína. Meðal uppskriftanna var hátíðarmatseðill en einnig voru dæmi um hversdagsmat þátttökulandanna. Uppskriftirnar voru síðan þýddar á ensku með aðstoð kennara og safnað saman í vandaða, myndskreytta bók. Að auki var skrifað stuttlega um hvern skóla, heimabyggð og eina fæðutegund sem einkennir hvert land út frá næringar –og hollustugildi. Samstarfslönd: Finnland, Frakkland,Þýskaland,Ítalía og Ísland.
Hvaleyrarskóli
Climates
Hugmyndin að CLIMATES verkefninu er að hvetja til tungumálakennslu yngri barna og fjöltyngdri Evrópu. CLIMATES verkefninu er ætlað að hvetja til að ýta undir tungumálakennslu yngri barna og örva hæfileika þeirra til að eiga samskipti við aðra þrátt fyrir annað móðurmál.
Samstarfslönd: Ítalía,Pólland,Lettland,Bretland,Ísland,Spánn,Tyrkland,Rúmenía,Svíþjóð,Eistland og Portúgal.
Leikskólinn Dvergasteinn
Puppets with a mission
Í þessi verkefni var hver þátttökuskóli með brúðu sem fór sem skiptinemi og heimsótti brúður samstarfsskólanna.Brúðan hafði ferðatösku meðferðis sem innihélt; dagbók, sögu, mataruppskrift, gjöf, fána og geisladisk. Brúðurnar fóru fimm sinnum í skiptinám. Allar brúðurnar ferðuðust á milli landanna á sama tíma og voru í einn mánuð í burtu. Skólinn sem tók á móti brúðunni þurfti að fara í menningartengda ferð með brúðuna og taka myndir af ferðalaginu og gera mynd um það. Brúðan sendi svo póstkort heim á meðan hún var í skiptináminu. Samstarfslönd: Belgía, Rúmenía, Portúgal, Ísland og Ungverjaland.
Leikskólinn Flúðir
Your story- my story -our story
Í verkefninu var lögð áhersla á skapandi tækifæri til lærdóms og mikilvægi þess að byrja snemma, á meðan börnin eru ung. Mikið var unnið með sögur og þulur. Teknir voru fyrir sameiginlegir hátíðsdagar og þeir dagar sem eru einstakir í hverju landi. Verkefnið þróaðist út i það að deila sögum sem voru sérstakar fyrir hvert land fyrir sig. Sagan af Búkollu var þýdd og send til þátttökulanda. Fyrir hvern fund voru lærð lykilorð á hverju tungumáli með börnunum til að geta „talað“ við börnin í erlendu skólunum. Þátttakendur skiptust einnig á lögum þannig að börnin lærðu alls kyns evrópska söngva. Samstarfslönd: Bretland, Svíþjóð, Frakkland, Ítalía, Rúmenía og Ísland.
LEIKSKÓLINN FURUGRUND
Verkefnið snerist um sjálfbæra þróun og miðaði að því að gera foreldra og nemendur meðvitaðari um verndun umhverfisins. Hver og einn skóli átti sitt eigið lukkudýr. Kennararnir tóku lukkudýrin með sér í allar ferðirnar til þess
að fylgjast með umhverfismálum og hjálpa börnunum að uppgötva og hafa áhrif í þeirra eigin löndum. Unnið var að ákveðnum þemum í stuttan tíma í senn, t.d. „ruslavika“, og „dagur án vatns“. Gefin var út bók, þar sem hver skóli samdi einn kafla sem innihélt sögu um lukkudýrið. Bókin fékk nafnið „ Ævintýri lukkudýranna“. Flestum skólunum tókst að verða Grænfánaskólar. Börnin lærðu heilmikið um fjölbreytni og fegurð náttúrunnar í Evrópu. Þau lærðu að hegðun manna og nútíma lífsstíll hefur neikvæð áhrif á jörðina. Þau vita núna hvað við erum heppin að hafa hreint rennandi vatn. Það endurspeglaðist í áhuga þeirra á fjáröflun til þess að kaupa brunn í Afríku. Saman lærðu börnin að standa vörð um jörðina og senda frá sér skilaboð um mikilvægi þess. Þau eru núna betur undirbúin sem
Evrópubúar framtíðarinnar. Samstarfslönd: Frakkland, Ísland, Ítalía, Pólland, Skotland og Svíþjóð
LEIKSKÓLINN NÓABORG
Lýðræði og þátttaka í síbreytilegum heimi voru einkunnarorð verkefnisins. Lýðræði á grísku eru 3 orð, demos/kratos/kratein, þ.e. fólk/kraftur/að stjórna. Lýðræði er húmanísk hugmynd um að valdið sé fólksins. Ákveðið var að líta á lýðræði sem þátttöku (participation)- að hafa áhrif. Markmiðið var að gera hugsanir og skoðanir barnanna sýnilegar fyrir foreldrum og kennurum. Í heimspekisamræðum við börn eru þau æfð í að láta í ljósi skoðanir sínar (engin skoðun er vitlaus eða röng), hlusta á aðra, tala, rökræða og styðja skoðanir sínar. Verkefnið hafði góð áhrif á starfið og viðhorf starfsfólks breyttist á meðan á því stóð. Samstarfslönd: Noregur, Ítalía, Tyrkland, Spánn og Ísland
MENNTASKÓLINN Á AKUREYRI
Meet the experience - connecting cultures
Menntaskólinn á Akureyri og Berufsfachschule für Wirtschaft und Tourismus Potsdam,
Nemendur frá MA fóru til Potsdam í Þýskalandi í nóvember 2008 og í mars/apríl 2009 komu nemendurnir frá Potsdam til Íslands. Í þessum gagnkvæmu heimsóknum mynduðust sterk vinabönd. Þátttakendur upplifðu menningu og sérkenni landsins sem þeir heimsóttu ásamt því að átta sig betur á sérkennum eigin menningarsvæðis. Á meðan á heimsóknunum stóð fór fram mikil verkefnavinna í blönduðum hópum. Unnið var að tveimur ferðabæklingum fyrir ungt fólk, annars vegar um Norðurland á þýsku og ensku og hins vegar um Berlin/Brandenburg á ensku og íslensku. Einnig voru teknar ljósmyndir og útbúin myndabók til að sýna vinnuna við verkefnið. Í gegnum verkefnavinnuna og með því að búa á heimilum gestgjafanna náðu nemendur að efla tungumálakunnáttu sína, félagslega færni og skilning á lífsháttum og hugarfari annara. Samstarfslönd: Ísland og Þýskaland.
MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI
PC based math project
Markmið verkefnisins var að auka gæði kennslu í stærðfræði í framhaldsskólum með því að nota nútíma hugbúnað.
Notaður var hugbúnaðurinn Mathematica og Math@desktop (MD). Forritin vinna sem heild og reyndust því mjög notendavæn. Þau tilheyrir svokölluðu Computer Algebra System (CAS). MD er auðvelt í notkun og hvetur kennara til að nota mismunandi aðferðir í kennslunni til að vekja áhuga nemenda á stærðfræði. Áhersla var lögð á að kenna nemendum og kennurum að nota forritið á fyrra ári verkefnisins. Á seinna ári var áhersla lögð á að nota forritið til að vinna verkefni í stærðfræði og setja upp ýmis stærðfræðilíkön.
Samstarfslönd: Ísland, Austurríki, Danmörk, Finnland, Litháen, Noregur, Portúgal, Pólland, Slóvakía,
NJARÐVÍKURSKÓLI og LEIKSKÓLINN GIMLI
Side by side
Markmið verkefnis var að þróa með nemendum eftirfarandi þætti:
• Færni í félagslegum samskiptum.
• Skilning á umhverfi sínu og menningu Evrópu.
• Skilning á tungumálinu þ.e. bæði á sinni eigin tungu sem og öðrum tungumálum.
• Hæfni í stafrænum samskiptum þ.e.a.s. að geta sett upp glærusýningar, búið til DVD og rafræn fréttabréf.
• Nýsköpunarhugsun og hæfni í skapandi vinnubrögðum (lausnarleitarnámi), taka ábyrgð á eigin námi og
þannig taka betur á áskorunum nútímasamfélags.
• Sköpun sveigjanlegs námsumhverfis með auknu samstarfi bæði innan skólans sem og við nærsamfélagið.
Á meðan verkefnið stóð yfir prófuðu nemendurnir margar nýjar námsaðferðir og lærðu að tileinka sér ýmis vinnubrögð sem jók á
sjálfstæði þeirra. Til að tryggja að sem flestir kæmu að verkefninu (nemendur, starfsfólk, yfirmenn, foreldrar og fl.) fann hver skóli sér aðferð sem hentaði honum best til að auka samvinnu manna á milli.
Lokaafurð verkefnisins var bæklingur á stafrænu formi sem inniheldur ýmsar kennsluaðferðir, kennsluleiðbeiningar auk annars efnis.
Samstarfslönd: Spánn, Bretland, Ungverjaland, Ísland, Ítalía og Frakkland
VESTURBÆJARSKÓLI
SMASH
Tengiliður: Björg Jónsdóttir
SMASH er skammstöfun fyrir þær áherslur sem verkefnið byggir á; S(tudy/learning to learn) M(obility), A(ctivities), S(port),
H(ealth). Grunnþættir verkefnisins voru heilbrigður lífstíll, hreyfing og íþróttir, að vera íbúi í Evrópu og að auka samstarf og
þekkingu á milli Evrópulanda. Mikil áhersla var á að efla heilbrigða lífshætti þátttakenda.
Til að auka þekkingu sína skiptust þátttakendur á verkefnum og var það gert með ýmsum hætti; með aðstoð tölvu og
samskiptaforrita, með verkefnum sem unnin voru á pappír og send á milli, með því að taka þátt í samstarfsfundum í öllum
þátttökulöndum, og með því að efna til sameiginlegra uppákoma sem bættu heilbrigði og juku lífsgæði.
Verkefnin voru unnin á þremur stigum; byrjendur, miðstig og elsta stig.
Samstarfslönd: Pólland, Spánn, Ísland, Holland, Ítalía og Grikkland



