Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Study_in_Europe_logo
Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

 

 

 

Starfsmenn sækja um Erasmus styrk til síns heimaskóla.

Háskólarnir fá styrkúthlutun frá landskrifstofu og miðla síðan styrkjum áfram til sinna stúdenta.
 

Skilyrði

Ekki þarf að vera formlegt Erasmus samstarfs við gestastofnunina eins og þegar um kennaraskipti er að ræða enda þarf gestastofnunin ekki að vera háskóli.

Ekki er skilyrði að um gagnkvæm skipti sé að ræða en það styrkir umsókn mikið ef hægt er að sína fram á að um skipulagt og gagnkvæmt samstarf sé að ræða. Dvölin við gestastofnun verður að tengjast starfi starfsmanns við heimaskóla.

Starfsþjálfun skal að öllu jöfnu vera 5 dagar (+2 ferðadagar) en þó er heimilt að víkja frá þeirri reglu í vissum tilvikum telji heimaskóli sérstakar ástæður fyrir því. Æskilegt er að heimaskóli beri slíkar undanþágur undir landskrifstofu Erasmus. Hámarksdvöl er 6 vikur.
 

Umsóknarfrestir

  • Fyrsti frestur er 15. maí.
  • Annar frestur er 15. október (ef ennþá eru til styrkir)

Hægt er að sækja um eftir að frestur er liðinn og vera á biðlista eftir styrk. Nokkuð algengt er að fresta eða sleppa þurfi áður samþykktum skiptum.

Umsóknum er skilað til alþjóðaskrifstofu heimskóla.
 

Með umsókn þarf að skila:

  • Boðsbréfi frá gestastofnun. Má vera tölvupóstur og þarf ekki að segja annað en að viðkomandi sé boðið að koma í „Erasmus Staff Training“ til gestastofnunar tímabilið X sem ekki þarf að skilgreina nákvæmlega (t.d. „one week in April or May).
  • Starfsþjálfunarplani (Staff Training Work Plan), sjá skjal hér að neðan. Í þessu plani er gert grein fyrir markmiðum og fyrirkomulagi heimsóknarinnar. Það er samkomulagsatriði milli starfsmanns og gestastofnunar hver sér um að ganga frá skjalinu (aðal atriðið er að það sé skýrt hvað á að gera á meðan dvöl stendur – þarf als ekki að vera langur texti). Alþjóðafulltrúar geta veit aðstoð ef með þarf. Æskilegast er að planinu sé skilað með umsókn (styrkir umsókn) en sé það ekki hægt má gera það síðar með samþykki alþjóðafulltrúa.
  • Afriti af bókun flugmiða þar sem verð kemur fram. Ekki þarf að skila inn flugmiða fyrr en umsækjandi er búinn að fá vilyrði fyrir styrk. Ef tekin er lest í stað tengiflugs fellur það undir ferðakostnað (oftast miðað við áætlað verð lestarmiða nema bókað sé fyrirfram).
     

Svar við umsókn

  • Svar við umsókn um styrk ætti að liggja fyrir fljótlega eftir umsóknarferst (1-3 vikur).
  • Umsókn er samþykkt með fyrirvara ef starfsþjálfunarplan fylgir ekki með.
  • Ef tímasetning samþykktrar heimsóknar breytist og er í óvissu getur starfsmaður sótt um halda umsókn opinni en skólinn getur einnig áskilið sér þann rétt að ráðstafa styrknum annað.
     

Samningur og fyrri greiðsla styrks

  • Áður en starfsmaður fer utan er gengið frá samningi vegna styrksins á milli starfsmanns og heimaskóla.
  • Kennari fær 80% af styrknum fyrir brottför.
     

Upphæð styrks skólaárið 2011-2012 (getur breyst á milli ára)

  • Ferðakostnaður allt að 1000 € 
  • Dagpeningar á bilinu 100-57 Evrur á dag (fer eftir lengd dvalar og lækka eftir því sem dvöl er lengri – sjá skjal hér að neðan).
  • Heildarstyrkur getur ekki orðið hærri en 2000 €
     

Uppgjör og seinni greiðsla styrks

  • Að dvöl lokinni þarf starfsmaður að fylla út rafræna lokaskýrslu.
  • Starfsmaður fær 20% af styrknum eftir að lokaskýrsla hefur verið móttekinn.
     

Erasmus kennara- og starfsmannaskipti - umsókn fyrir skólaárið 2011-2012

Hægt er að nálgast umsóknina á heimasíðum hvers háskóla.

Um er að ræða sama umsóknarform þó svo það sé byrt á fleiri en einum stað.