Umsóknir og eyðublöð fyrir skólaárið 2010-2011
Umsóknarfrestur er til 1. mars 2010. Umsóknir sem berast eftir 1. mars fara á biðlista.
| Áætlun | Umsóknir | Skýrslur |
|---|---|---|
| Stúdentaskipti | Umsókn fyrir skólaárið 2010-2011 Fylgigögn: Learning Agreement (.doc, 30 kb) |
Kemur síðar |
| Starfsnám | Umsókn fyrir skólaárið 2010-2011 Fylgigögn: Training Agreement & Quality Commitment (.doc, 44 kb) |
Kemur síðar |
Umsóknir og eyðublöð fyrir skólaárið 2009-2010
Umsóknarfrestur var til 1. mars 2009. Umsóknir sem berast eftir 1. mars fara á biðlista.
| Áætlun | Umsóknir | Skýrslur |
|---|---|---|
| Stúdentaskipti | Umsókn fyrir skólaárið 2009-2010 Fylgigögn: Learning Agreement (.doc, 30 kb) |
Lokaskýrsla fyrir skólaárið 2009-2010. |
| Starfsnám | Umsókn fyrir skólaárið 2009-2010 Fylgigögn: Training Agreement & Quality Commitment (.doc, 44 kb) |
Lokaskýrsla fyrir skólaárið 2009-2010. |
Leiðbeiningar
Byrjaðu á því að fylla út „Learning Agreement“ og fá það undirritað. Umsóknin telst hvort eð er ekki gild fyrr en þetta skjal er frágengið. Ef ekki er ljóst hvaða námskeið þú munt taka við gestaskólann, er í lagi að skila inn „Learning Agreement“ þar sem engin námskeið eru tilgreind ef viðkomandi skor/deild samþykkir það.
Í rafrænu umsókninni er beðið um ERASMUS „ID Code“ fyrir gestaskólann (t.d "DK KOBENHA01). Gott er að vera búinn að finna þetta áður en byrjað er að fylla umsóknina út. Á síðunni http://www.moveonnet.eu er hægt að finna þessar upplýsingar, velja „Directory“ og síðan „Countries“ og síðan skóla.
Umsóknin er í fimm skrefum. Til að fara á milli skrefa verður að nota „next“ og "previous" takkana á forminu. Það má EKKI nota "back" takkann í vefskoðaranum. Við það tapast umsóknin. EFTIR að búið er að senda inn umsóknina rafrænt ("submit") er boðið upp á prentvæna útgáfu. Prentaðu umsóknina út.
Erasmus stúdenta umsókn samanstendur af eftirfarandi:
- Rafrænni umsókn sem fyllt er út á netinu og prentuðu eintaki af henni. Boðið er upp á prentvæna útgáfu af umsókninni eftir að búið er að senda hana rafrænt („submit“).
- „Learning Agreement“ sem fulltrúi skorar, deildar eða skóla þarf að skrifa undir. Athugið að undirskrift frá gestaskóla kemur síðar.
- Námsferli (einkunnum) á ensku frá nemendaskrá.


