Skrifstofa Leonardo stendur fyrir ýmsum viðburðum á hverju ári. Má þar nefna námskeið fyrir umsækjendur og kynningar á þeim styrkjum sem rúmast innan áætlunarinnar. Skrifstofan stendur einnig fyrir ýmsum ráðstefnum um ýmis málefni er varðar starfsmenntun, iðulega í samstarfi við aðra hagsmunaaðila.
Námskeið í gerð umsókna um Leonardo MANNASKIPTA- OG SAMSTARFSVERKEFNA verður haldið mánudaginn 9. janúar kl. 13 - 15. Vinsamlegast skráið þátttöku á astridur@hi.is
Lesa meira...Námskeið í gerð umsókna um Leonardo YFIRFÆRSLUVERKEFNI verður haldið fimmtudaginn 5. janúar. Vinsamlegast skráið þátttöku á: astridur@hi.is
Lesa meira...Fulltrúar evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa standa fyrir kynningu á styrkja og samstarfsmöguleikum á vegum evrópskra og norrænna samstarfsáætlan þann 12. janúar nk. á Háskólatorgi, Háskóla Íslands frá kl. 15 - 17:30.
Lesa meira...Ráðstefna um gæðamál í starfsmenntun og framhaldsfræðslu var haldin þann 9. desember síðastliðinn. Mikill áhugi var fyrir málefninu en 120 manns tóku þátt. Kynnt voru góð dæmi um gæðastarf íslenskra fræðsluaðila og evrópsk verkefni á sviði gæðamála sem unnin hafa verið af íslenskum aðilum. Norskur sérfræðingur í gæðakerfum kynnti evrópsk verkfæri sem þróuð hafa verið til að efla starfsmenntun og framhaldsfræðslu í Evrópu og mikilvægi gæðastarfs í því samhengi. Í lokin ræddu þátttakendur framtíðarsýn og næstu skref í gæðamálum á Íslandi.
Lesa meira...
Menntakerfi fyrir alla – jafngildi og gæði náms
„Hvenær hefur maður lært og hvenær hefur maður ekki lært?“
BSRB húsinu, Grettisgötu 89, fimmtudaginn 3. mars kl. 9-15






