Landskrifstofur um alla Evrópu standa fyrir tengslaráðstefnum með það að markmiði að leiða saman fyrirtæki og stofnanir sem eru að reyna að ná til sömu markhópa og vilja ná fram sambærilegum árangri á tilteknu sviði. Þátttaka í tengslaráðstefnu er góð leið til að komast í samband við evrópska samstarfsaðila og til að þróa áfram hugmynd að verkefni með það að markmiði að undirbúa umsókn um Leonardo styrk sem kemur til úthlutunar árið 2011.
Þeir aðilar sem áhuga hafa á að taka þátt í tengslaráðstefnu þurfa að fylla út sérstakt umsóknareyðublað. Umsóknum vegna Leonardo tengslaráðstefna er skilað til Leonardo skrifstofunnar, Rannsóknaþjónustu Háskólans, Dunhaga 5, 107 Reykjavík, sími 525 4900. Umsóknareyðublaðið er rafrænt og er það sama og notað er til að sækja um undirbúningsstyrk. Styrkirnir eru að hámarki € 1500 og geta þeir verið nýttir til að greiða ferðir, uppihald og ráðstefnugjöld.
Smelltu hér til að sækja umsóknareyðublaðið til að sækja um styrk til að fara á tengslaráðstefnu
ATH! Þetta er sama formið og notað er til að sækja um undirbúningsstyrk.
Hér fyrir neðan er tafla sem inniheldur upplýsingar um tengslaráðstefnur sem kynntar hafa verið fyrir 2010. Með því að smella á heiti ráðstefnunar (Theme) er hægt að fá nánari upplýsingar, þ.e. ef þær hafa borist Landskrifstofu
Frekari upplýsingar um ráðstefnur eru settar inn á síðuna jafnóðum og þær berast.
Listi yfir tengslaráðstefnur 2010
| Dagsetning | Land/Landskrifstofa | LLP áætlun | Markhópur | Titill/Þema | Staðsetning |
|
8.-10. júní |
CIMO, Finnland |
Leonardo da Vinci |
TOI, PA & VETPRO |
“Tools for Quality Assurance in Vocational Education and Training” |
Hämeenlinna, Finland |
|
28. sept. - 2. október |
RO - Rúmenía |
Leonardo da Vinci |
|
Transnational mobilities for a better insertion on the labour market |
Sinaia |
|
4. - 6. október |
DE NA BE1 |
Leonardo da Vinci |
Allir markhópar Leonardo |
Qualification of teachers and trainers in VET Fellur niður vegna ónægrar þátttöku |
Köln |
|
13. - 16. október |
PL Pólland |
Leonardo da Vinci |
Universities, high schools, training institutions, small and medium enterprises, networks, chambers of commerce, intermediaries institutions |
European cooperation between universities and enterprises in the VET and HE field |
Varsjá |
|
14. - 17. október |
Spánn |
Leonardo da Vinci |
Vocational education and training |
Ekki búið að staðfesta |
Eftir að staðfesta |
|
25. - 27. október |
TR - Tyrkland |
Leonardo da Vinci |
LdV markhópar - allar stofnanir sem vilja taka þátt í LdV-verkefnum |
Improving the quality of mutual learning activities between VET institutions |
Antalya |
| 25. - 27. október |
BE-FR
(Belgía - frönskumælandi) |
Leonardo da Vinci | Allir þeir sem tekið hafa þátt og mögulega munu taka þátt í LdV |
“ECVET in practice” |
Brussel |
|
október eða nóvember |
CZ - Tékkland |
Leonardo da Vinci |
Project holders of Mobility, Partnerships, TOI |
Ekki búið að staðfesta |
Prag |
|
24. - 26. nóvember |
UK |
Grundtvig |
Organisations looking to develop Leonardo and Grundtvig Partnership projects |
Technology and Learning |
Brighton |







