Umsóknarfrestir Leonardo 2012

Yfirfærsluverkefni 2. febrúar
Mannaskipti 3. febrúar
Samstarfsverkefni 21. febrúar


 

Leonardo bæklingur


Gengistafla 

Til að fá upplýsingar um gengi á evru vs. ÍSK smelltu hér


 




hnappur_nsn.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

 

Evrópusamvinna heimasíða

EVE_logo

 


 


Upplýsingar á vef EACEA 

  • Niðurstöður árlegrar úthlutunar til samstarfsverkefna liggur  fyrir í júlímánuði og geta verkefnin hafist 1. ágúst svo framarlega sem samningur hafi verið gerður.  Eftir að samningur hefur verið undirritaður er greidd fyrirframgreiðsla, 80% af styrkupphæðinni.
  • Á miðju tímabili skal skila milliskýrslu þar sem skýrt er frá framgangi verkefnisins og lokaskýrslu skal skila tveimur mánuðum eftir að gildistíma verkefnisins lýkur.
  • EST - European Shared Treasure er gagnabanki samstarfsverkefna sem allir þátttakendur í samstarfsverkefnum  (coordinator and partners) þurfa að skrá í upplýsingum um verkefni

 


Skýrsluform verkefna

Hér fyrir neðan eru skýrsluform milliskýrslna vegna verkefna áranna 2010 og 2011

Milliskýrslu skal skila til  Landskrifstofu Menntaáætlunar, Leonardó áætlunarinnnar  á miðju verkefnatímabilinu eða fyrir 30. september ár hvert. Hér fyrir neðan eru form milliskýrslna og er miðað við það ár sem samningar eru gerðir um verkefnin og þeim úthlutað.

Form fyrir milliskýrslu 2011 verkefna PROGRESS REPORT 2011

Form fyrir milliskýrslu 2010 verkefna PROGRESS REPORT 2010


Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar vegna lokaskýrslna


Gildistími Leonardo samstarfsverkefna eru tvö ár og kemur fram í article 2 í samningi um verkefnin. Eingöngu ferðir sem farnar eru innan samningstímans eru fullgildar og samþykktar sem hluti af verkefninu.
Gildistimi verkefna ársins 2009 rennur út 31.júlí 2011
Gildistími verkefna ársins 2010 rennur út 31.júlí 2012
Gildistími verkefna ársins 2011 rennur út 31.júlí 2013

Lokaskýrslu skal skila til Landskrifstofu tveimur mánuðum eftir að gildistíma verkefnisins lýkur eða í síðasta lagi 30. September.

Lokaskýrslan er rafrænt skýrslueyðublað, svokallað eForm.  Undir lok verkefnatímans fær hver þátttakandi senda slóð í sitt form með tölvupósti og skal hann fylla út það form, prenta út, undirrita og senda til Landskrifstofu Menntáætlunar ESB, Dunhaga 5, 107 Reykjavík. 

Eftir að lokaskýslan hefur verið samþykkt má greiða lokagreiðslu verkefnisins að því tilskildu að upplýsingar hafið verið fylltar inn  í EST gagnagrunn samstarfsverkefna.  Hver þáttttakandi fær send aðgangsorð með tölvupósti til að geta sett inn upplýsingarnar.  EST gagnagrunnurinn er aðeins opin maí – september ár hvert.


Leiðbeiningar fyrir rafræn skýrslueyðublöð - eForm

Rafræna skýrslueyðublaðið  er pdf skjal sem hægt er að opna og vinna með í Adobe Reader í útgáfu 9 eða nýrri. Adobe Reader er ókeypis forrit og er hægt að sækja það á www.adobe.com

  • Landskrifstofa sendir  hverjum verkefnisstjóra slóð í sitt eyðublað.  Vistið skjalið í tölvunni ykkar (velja Save). Það þarf ekki að vera nettengdur til að vinna með umsóknina í tölvunni.
  • Til að athuga hvort eyðublaðið sé rétt útfyllt, þarf að smella á Validate-hnappinn. Ef ekki hefur verið fyllt rétt út, kemur upp ábending um það.
  • Ekki er hægt að senda inn umsóknina fyrr en hægt er að "Validera" allt eyðublaðið. Þegar því er lokið skal smella á Submit Online - hnappinn. Þá er rafræna umsóknin send (tölvan þarf að vera nettengd). Ef sendingin heppnast, birtist staðfesting á eyðublaðinu. Prentið skýrsluna út og undirritið og sendið til Landskrifstofu (Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB, Leonardo, Dunhaga 5, 107 Reykjavík).
  • Ef ykkur vantar frekari aðstoð getið þið haft samband við starfsfólk Leonardo áætlunarinnar, Ástu Vigdísi í síma 525 4151 eða með tölvupósti: astavig(hjá)hi.is eða Margréti í síma 525-4291 eða með tölvupósti:marjoh(hjá)hi.is

EST, European Shared Treasure gagnabankinn


EST, European Shared Treasure gagnabankinn er sérstakur gagnabanki fyrir samstarfsverkefni. Honum er ætlað að auka sýnileika verkefna og bæta aðgengi að upplýsingum um afurðir verkefna.  Samkvæmt samningi skulu allir þátttakendur í samstarfsverkefnum  (coordinator and partners)  skila upplýsingum um verkefnin í EST gagnagrunninn.

Það er munur á hlutverki og aðgangi þeirra sem eru verkefnisstjórar (coordinators) og þátttakenda (partners).  Í meginatriðum virkar gagnagrunnurinn þannig að búið er að setja lýsingu á verkefninu inn í kerfið og var hún tekin beint úr umsókninni.  Þessi lýsing er á ensku og lokuð öllum nema verkefnisstjórum sem geta lagfært hana ef þörf kerfur.  Allir þátttakendur eru beðnir að þýða þessa lýsingu á sitt eigið tungumál. Að auki eru allir þátttakendur beðnir að setja inn upplýsingar um niðurstöður (results) verkefnisins, bæði á íslensku og ensku. 

Allir þátttakendur fá senda frá okkur slóð að gagnagrunninum og aðgangsorð.  Ítarlegur leiðbeiningabæklingur er hér fyrir neðan en hann er  nauðsynlegt að hafa við hendina þegar byrjað er að færa upplýsingar inn í gagnagrunninn. 

Einungis er mögulegt að færa upplýsingar inn í gagnagrunnin á tímabilinum maí – september, annars er hann lokaður.  Ein af forsendum þess að lokagreiðsla verkefnisins sé framkvæmd er að búið sé að færa inn þessar upplýsingar.   Því er mikilvægt að ljúka þessu ferli   fyrir lok september. 

  EST leiðbeiningabæklingur 2011.pdf (.pdf 406 K) Sækja skjal

 

Á slóðinni fyrir neðan er hægt að leita eftir verkefnum (ath. þetta er ekki slóðin sem verkefnisstjórar nota til að setja inn upplýsingar um verkefni. Þá slóð fá verkefnisstjórar senda sérstaklega):

http://www.programmallp.it/est/search.php


Skýrslukóðar

Við gerð þeirra skýrslna sem hér um ræðir eru notaðir ýmsar skammstafanir og kóðar. Vinsamlegast smellið hér til að sækja skjal yfir þá kóða sem notaðir eru (.doc, 151 kb).