Námskeið fyrir umsækjendur
Árlega eru haldin námskeið fyrir umsækjendur mannaskipta- og samstarfsverkefan. Síðasta námskeið var haldið 12. janúar 2010.
Glærukynning fyrir umsækjendur mannaskipta- og samstarfsverkefna
Næsti umsóknafrestur er 19. febrúar 2010
Umsóknakerfið
Verkefnisstjóri (coordinator) samstarfsverkefna vinnur umsóknina í samstarfi við aðra þátttakendur í verkefninu. Hann skal senda afrit af fullkláraðri umsókn til hvers þátttakanda sem síðan sendir umsóknina inn í sínu landi. Í samstarfsverkefnum er umsóknin metin í landi þess aðila sem er verkefnisstjóri en fjármagn hvers þátttakanda kemur frá þeirra eigin löndum. Því þarf að senda in umsókn í hverju landi.
Umsóknir um samstarfsverkefni árið 2010 skulu gerðar á rafrænu formi í landi verkefnastjóra (coordinator) og skal hann nota svokölluð eForm. Hann skal svo senda umsóknina öðrum þátttakendum í verkefninu sem prenta hana út, undirrita og senda til sinnar landsskrifstofu. Athugið að eftir að verkefnisstjóri hefur sent inn rafrænu umsóknina er ekki hægt að breyta henni.
Allir þáttakendur senda umsóknina undirritaða á pappír með fylgigögnum í þríriti (frumrit og tvö afrit) til landskrifstofu. Undirrituð umsókn á pappír er hin gilda umsókn og berist hún ekki á pappír á tilsettum tíma er hún ógild.
Móttakandi:
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB, Leonardo áætlunin
Dunhaga 5
107 Reykjavík
Umsóknareyðublöð
Umsóknareyðublöð fyrir Leonardo samstarfsverkefni ársins 2010 eru rafræn.
Smelltu hér til að komast inn á síðu með rafræna umsóknarforminu og leiðbeiningum við útfyllingu þess.
Við gerð þessa hluta umsóknarinnar er mikilvægt að kynna sér þær upplýsingar sem Evrópusambandið gefur út varðandi markmið, forgangsatriði og leiðbeiningar. Athugið að í gögnunum er fjallað um allar undiráætlanir Menntaáætlunar Evrópusambandssins (Lifelong Learning Programme) og því þurfa umsækjendur Leonardo að einbeita sér að kaflanum um Leonardo. Smelltu hér til að lesa til að nálgast þessar upplýsingar sem settar hafa verið inn eftir köflum á heimsíðu okkar.
Á heimasíðu Evrópusambandsins er einnig hægt að nálgast upplýsingar um Leonardo da Vinci, starfsmenntahlutann
Styrkupphæðir umsókna ársins 2010:
Veittur er styrkur til að sækja verkefnisfundi. Upphæðin er föst og fer eftir áætluðum fjölda funda og fjölda þátttakenda frá hverjum samstarfsaðila á verkefnistímabilinu. Þannig er hægt að sækja um styrk til 4,8,12 eða 24 ferða á 2ja ára tímabili.
| Verkefni | Hámarksstyrkur* |
|
4 ferðir / fundir |
€ 8000 |
|
8 ferðir / fundir |
€ 14000 |
|
12 ferðir / fundir |
€ 18000 |
|
24 ferðir / fundir |
€ 25000 |
Leitað eftir samstarfsaðilum
Hér geturðu sótt eyðublað þar sem þú getur fyllt inn upplýsingar um hugmynd þína að samstarfsverkefni með það að markmiði að finna samstarfsaðila. Þú getur þá hvort sem er sent þetta blað til þinna eigin tengiliða eða sent það áfram til Landskrifstofunnar sem sendir það áfram á sína tengilið.
-------------------------------------
Undirbúningsheimsóknir
Þessir styrkir eru veittir til ferða sem farnar eru til að undirbúa Leonardo verkefni, til dæmis með þátttöku í tengslaráðstefnum eða til að hitta samstarfsaðila á öðrum vettvangi. Það er afar mikilvæg fyrir aðila sem eru að undirbúa verkefni að hitta samstarfsaðila fyrirfram og það stuðlar að auknum gæðum umsókna og verkefna.
Meðan fjármagnið sem til ráðstöfunar er til þessa verkefnis endist er hægt að sækja um styrkina og eru umsóknir afgreiddar mánaðarlega. Styrkirnir geta verið nýttir til að greiða ferðir, uppihald og ráðstefnugjöld. Umsóknum er skilað til Leonardo skrifstofunnar, og veitir starfsfólk skrifstofunnar nánar upplýsingar um styrkina.
Frekari upplýsingar um undirbúningsheimsóknir og undirbúningsstyrki







