Næsti umsóknafrestur er 5. febrúar 2010
Ef þú hefur áhuga á að sækja um mannaskiptastyrk er ráðlegt að byrja á því að kynna sér vel hvaða tækifæri felast í mannaskiptaverkefnum, hver munurinn er á milli styrkja til starfsþjálfunar eða starfsmannaskipta, sem og hvernig umsóknarferlið er.
Árlega eru haldin námskeið fyrir umsækjendur mannaskipta- og samstarfsverkefan. Síðasta námskeið var haldið 12. janúar 2010. Með því að smella hér er hægt að skoða glærukynningu námskeiðsins.
Umsóknakerfið
Umsóknum um mannaskiptaverkefni árið 2010 skal skilað í rafrænu formi og skal nota svokölluð e-form. Þetta er breyting miðað við undanfarin ár og núna er verið að taka í notkun kerfi Evrópusambansins sem gildir fyrir alla verkefnaflokka Menntaáætlunar ESB.
Umsóknareyðublað og fylgigögn er hægt að nálgast á síðunni Umsóknir og eyðublöð
Athugið að ekki er nóg að senda umsóknir rafrænt. Þær verður að prenta út, undirrita og senda með fylgigögnum í þríriti (frumrit og tvö afrit) til Landskrifstofu. Ef umsóknin berst ekki undirrituð á pappír á tilsettum tíma er hún ógild.
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB,
Leonardo áætlunin
Dunhaga 5
107 Reykjavík
Umsóknarvinnan
Umsóknareyðublaðið er vistað á síðunni Umsóknir og eyðublöð
Til leiðbeininga fyrir umsækjendur hafa einfaldar leiðbeiningar verið skrifaðar inn í umsóknareyðublað sem hægt er að sækja hér fyrir neðan. Til viðbótar og stuðnings eru nokkrar praktískar leiðbeiningar sem einnig er hægt að nálgast hér fyrir neðan.
Vinsamlegast smellið hér til að sækja"leiðbeinandi umsóknareyðublað"
Vinsamlegast smellið hér til að sækja praktískar leiðbeiningar með 2010 umsóknum.
Tæknilegar upplýsingar og leiðbeiningar vegna e-forma eru á síðunni Umsóknir og eyðublöð
Áður en farið er að fylla inn umsóknina getur verið ágætt að biðja samstarfsaðila um að senda þær upplýsingar sem þarf um viðkomandi stofnun. Með því að smella hér færðu skjal sem sýnir þær upplýsingar sem óskað er eftir varðandi væntanlega samstarfsaðila. Einnig þurfa samstarfsyfirlýsingar (letter of intent) frá væntanlegum samstarfsaðilum að fylgja umsóknunum. Leiðbeiningar um "letters of intent" eru aftast í umsóknareyðublaðinu, í kafla J.1
Styrkupphæðir umsókna ársins 2010
Hámarksstyrkur fyrir uppihald og ferðir (Subsistence)
Í verkefnum ársins 2010 er styrkur vegna uppihalds og ferða ekki sundurliðaður heldur er um eina upphæð að ræða. Gefnar eru út styrkupphæðir fyrir eina viku, tvær vikur og síðan per viku eftir það. Athugið að 2 vikur er lámarksdvöl fyrir verkefnaflokkana IVT - Nemendur í starfsmenntaskólum, starfsnámi og á samningi og PLM - fólk á vinnumarkaði. Einnar viku dvöl er því aðeins möguleg fyrir stjórnendur og leiðbeinendur í VETPRO verkefnaflokknum.
Styrkupphæðir eru misháar eftir löndum. Með því að smella hér færðu töflu sem sýnir styrkupphæð uppihalds og ferðakostnaðar (subsistence) fyrir íslenska umsækjendur í verkefnum ársins 2010. Í töflunni er um að ræða hámarksupphæðir sem gilda fyrir það land sem heimsótt er.
Athugið að í umsóknareyðublaðinu eru dálkar fyrir sundurliðaðan kostnað fyrir uppihald og ferðir en í íslenskum umsóknum skal aðeins fylla inn í dálkinn fyrir uppihald – Subsistence. Ekkert er fyllt inn í dálinn fyrir ferðir – travel og hann látinn standa auður.
Styrkir fyrir fatlaða einstaklinga og/eða fólk með sérstakar þarfir
Mögulegt er að sækja um hærri styrk ef um fatlaða einstaklinga er að ræða. Það þarf að færa rök fyrir þeim viðbótarkostnaði sem sótt er um og við uppgjör þarf að sýna fram á viðbótarkostnað með því að leggja fram reikninga. Einnig er hægt að sækja um sérstakan styrk fyrir fylgdarmenn ef þörf er á og miðast þá styrkurinn við venjulegar styrkupphæðir miðað við dvalarlend (sjá tölfur hér fyrir ofan). Beiðni um slíka styrki er færð inn í töflu fyrir fyldarmenn (accompanying persons) í umsókninni.
Styrkir fyrir fylgdarmenn (accompanying persons)
Mögulegt er að sækja um styrk fyrir fylgdarmenn t.d. nemenda og eru styrkupphæðir þá þær sömu og fyrir aðra þátttakendur – sjá töflur hér fyrir ofan. Rökstyðja skal þörfina í skýringum með fjárhagsáætlun í umsókn.
Undirbúningsstyrkir (requested funding for preparation)
Mögulegt er að sækja um styrki fyrir menningar- og tungumálaundirbúning þátttakenda. Aðeins er hægt að veita styrk fyrir undirbúningi sem er umfram hefðbundna kennslu og skal kostnaðurinn sem sótt er um um rökstuddur í umsókn.
Styrkupphæð er að hámarki 300 evrur á mann í verkefnum nemenda í starfsnámi (IVT) og fólks á vinnumarkaði (PLM). Hámark í flokki leiðbeinenda og stjórnenda er 100 evrur á þátttakanda.
Umsýslustyrkir (organisation of mobility)
Mögulegt er að sækja um styrk fyrir umsjón og skipulagningu verkefna. Þessir styrkir skulu renna til þeirrar stofnunar sem sér um framkvæmd verkefnisins en ekki til einstakra þátttakenda. Styrkurinn miðast við fjölda þátttakanda í verkefnum og er hámarksstyrkur 200 evrur fyrir hvern þátttakenda. Athugið að ekki er hægt að veita umsýslustyrk til fylgdarmanna.
Undirbúningsheimsóknir
Þessir styrkir eru veittir til ferða sem farnar eru til að undirbúa Leonardo verkefni, til dæmis með þátttöku í tengslaráðstefnum eða til að hitta samstarfsaðila á öðrum vettvangi. Það er afar mikilvæg fyrir aðila sem eru að undirbúa verkefni að hitta samstarfsaðila fyrirfram og það stuðlar að auknum gæðum umsókna og verkefna.
Meðan fjármagnið sem til ráðstöfunar er til þessa verkefnis endist er hægt að sækja um styrkina og eru umsóknir afgreiddar mánaðarlega. Styrkirnir geta verið nýttir til að greiða ferðir, uppihald og ráðstefnugjöld. Umsóknum er skilað til Leonardo skrifstofunnar, og veitir starfsfólk skrifstofunnar nánar upplýsingar um styrkina.
Frekari upplýsingar um undirbúningsheimsóknir og undirbúningsstyrki
Vantar þig samstarfsaðila?
Reglulega berast Landskrifstofunni erindi frá aðilum sem eru að leita eftir íslenskum samstarfsaðilum. Þessum erindum safnar starfsfólk Leonardo saman og setur hér á heimasíðuna.
Nánari upplýsingar og aðstoð við umsækjendur
Nánari upplýsingar um mannaskipti veitir Margrét Jóhannsdóttir, marjoh(hjá)hi.is, verkefnisstjóri mannaskipta á Landsskrifstofu Leonardo.







