Umsóknarfrestir Leonardo 2012

Yfirfærsluverkefni 2. febrúar
Mannaskipti 3. febrúar
Samstarfsverkefni 21. febrúar


 

Leonardo bæklingur


Gengistafla 

Til að fá upplýsingar um gengi á evru vs. ÍSK smelltu hér


 




hnappur_nsn.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

 

Evrópusamvinna heimasíða

EVE_logo

 


 


Upplýsingar á vef EACEA 

Mannaskiptaverkefni

Markhópar mannaskiptaverkefna eru þrír:

Nemendur í starfsmenntun (Initial Vocational Training - IVT)
Verkefni fyrir nemendur í starfsmenntaskólum, í starfsnámi og á samningi.  Starfsþjálfunina má taka sem hluta af námi, eftir að námi er lokið eða meðan á samningi stendur.  Um þessar mundir er lögð sérstök áhersla á starfsþjálfun í fyrirtækjum sem er hluti af samningstíma iðnnema.
Dvalarlengd: 2 vikur - 9 mánuðir

Fólk á vinnumarkaði (People in the Labour Market - PLM)
Verkefni fyrir fólk á atvinnumarkaði, einstaklinga í atvinnuleit og sjálfstæða atvinnurekendur sem vilja auka færni sína og þekkingu.  Markmið verkefnanna er að auka faglega færni og þroska og stuðla að aukinni tungumálakunnáttu, víðsýni og starfshæfni einstaklinga. 
Dvalarlengd: 2 vikur – 6 mánuðir

Fagaðilar í starfsmenntun (VET Professionals)  
Verkefni  fyrir leiðbeinendur, kennara, starfsmenn, fræðslustjóra eða starfsmannastjóra í fyrirtækum og stofnunum.  Markmið verkefnanna er að afla og yfirfæra þekkingu og deila reynslu með öðrum í sambærilegri starfsemi og kennslu. Mikil áhersla er lögð á kynningu, innleiðingu aðferða og því að deila reynslu sinni með öðrum þegar heim er komið. Styrkir eru einnig veittir til kennara og leiðbeinenda sem vilja auka tungumálakunnáttu vegna starfs síns.
Dvalarlengd: 1 – 6 vikur

Sérstakir forgangshópar umsókna ársins 2012:

Umsóknir frá aðilum sem skipuleggja starfs- og   vinnustaðanám, t.d.  starfsmenntaskólar og starfsgreinaráð.  Áhersla skal lögð á vinnustaðaþjálfun í verkefnum.

Umsóknir sem snúa að þessum verkefnum fá aukapunkta í mati umsókna og þannig forgang í umsóknaferli verkefna.

 Hverjir geta sótt um styrk?

Lögaðilar, opinberir aðilar, fyrirtæki, skólar og stofnanir eða samtök sem tengjast starfsmenntun og starfsþjálfun geta lagt inn umsóknir um styrki á auglýstum umsóknarfrestum.

Hvernig má nota styrkinn?

Veittir eru stykir fyrir uppihald og ferðir og miðast upphæðin við dvalartíma og það land sem heimsótt er.  Einnig er hægt að sækja um styrki fyrir umsjón sem og tungumála- og menningarundirbúning styrkþega (ekki starfsmannaskipti)  og hægt er að sækja um sértaka styrki fyrir fatlaða einstakinga og aðstoðarfólk þeirra

 

 

Vottun mannaskiptaverkefna (Leonardo da Vinci Certificate for mobility)

Núna er  mögulegt að sækja um vottun fyrir mannaskiptaverkefni.  Um er að ræða nýja tegund umsókna sem eru til einföldunar fyrir skóla, stofnanir og fyrirtæki sem bjóða og sækja um svipuð verkefni til lengri tíma.  Umsóknir um vottun gilda aðeins fyrir tvo verkefnaflokka, IVT og PLM og verður hámark 15% fjármagnsins sem er til úthlutunar fyrir Leonardo mannaskipti  veitt til þessara verkefna.  

Þeir sem fá samþykkta vottun fá vilyrði fyrir mannaskiptaverkefnum í 4 ár og nægir þá að senda einfalda umsókn um styrkveitingu á næstu árum þar sem verkefnin eru endurnýjuð.  Lögð skal áhersla á það að um vilyrði er að ræða og hugsanlegt er að það verði afturkallað ef t.d kemur í ljós að verkefnin eru ekki framkvæmd samkvæmt áætlun eða ef framkvæmdin er ekki nægilega góð.
Þegar sótt er um vottun er sú umsókn fylgiskjal með venjulegri  umsókn um mannaskiptaverkefni. 

Umsóknin er í word formati. Umsóknarformið og leiðbeiningar er hægt að nálgast hér fyrir neðan, í kaflanum um umsóknareyðublöð.  Í matsferlinu eru báðar umsóknir metnar og mögulegt er að venjuleg umsókn sé samþykkt þó umsókn um vottun sé ekki samþykkt.

Forsenda þess að geta sótt um vottun er að umsækjandinn (skóli, stofnun eða fyrirtæki ) hafi  klárað a.m.k. eitt mannaskiptaverkefni á árangursríkan hátt á síðastliðnum 3 árum.   Mikil áhersla er lögð á gæði verkefna  og felur vottun í sér staðfesting á hæfni stofnana til að skipuleggja og framkvæma góð mannaskiptaverkefni .  Þegar gæði eru metin er tekið mið af innihaldi, framkvæmd og fjármálum.
Í umsókn um vottun er stofnunin beðin að lýsa fyrri reynslu stofnunarinnar af evrópusamvinnu og sýna fram á  stefnu og afstöðu stofnunar til alþjóðlegrar samvinnu og mannaskipta og á þann hátt er lögð áhersla á stefnu og vilja umsækjenda til samstafs á evrópskum grundvelli.