Markmiðið með miðlun og hagnýtingu upplýsinga er eins og nafnið gefur til kynna að fá sem mest út úr þeim verkefnum sem styrkt eru gegnum menntaáætlunina.
Nánari upplýsingar er að finna a vef framkvæmdastjórnar ESB og ýtarlega upplýsingar er að finna í fylgigögnum með auglýsingu eftir styrkjum hvers árs (Call for proposals).
Dæmi um verkefni.
Hægt er að skoða lista yfir samþykkt verkefni (Key Activity 4 – Compendium) á vef EACEA.
Umsjón með áætluninni
Framkvæmdastjórn ESB hefur falið framkvæmdaskrifstofu ESB um mennta- og menningarmál (Education, Audiovisual and Culture Executive Agency, EACEA) umsjón með þveráætlunum. Öll formleg umsjón (umsóknir, mat umsókna, samningsgerð) er á höndum þessarar skrifstofu.
Hlutverk Landskrifstofu er að miðla upplýsingum um áætlunina og aðstoða umsækjendur eins og kostur er.


