Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

 

 

 

 

Verkefni tengd tungumálum ertu sérstakt markmið í megin áætlunum menntaáætlunar ESB, Comenius, Erasmus, Grundtvig og alveg sérstaklega í Leonardo.

Markmið þveráætlunar í tungumálum er eins og nafnið gefur til kynna að ná til verkefna sem ganga þvert á mismunandi skólastig og falla því ekki alfarið undir eina af megin áætlununum. Þveráætlun um tungumál skiptist í tvo liði.

Samstarfsverkefni

Verkefnum er ætlað að efla skilning á mikilvægi tungumálanáms, margbreytileika Evrópskra tungumála, bættu aðgengi að tungumálanámi og þróun og dreifingu á efni til tungumálakennslu og til að meta tungumálafærni.
Áhersla er lögð á verkefni sem tengjast:

  • Minna notuðum og kenndum tungumálum í Evrópu
  • Auknum tenglum ólíkra menningarhópa í Evrópu
  • Atvinnulífinu
  • Þróa og miðla aðferðum til tungumálanáms með áherslu á notkun upplýsingatækni

Samstarfsnet

Samstarfsnetum er ætlað að styrkja stefnumótun í tungumálum og eftifylgni við settum markmiðum. Þeim er sérstaklega ætlað að ná til þeirra er hafa með stefnumótun að gera og fremstu fræðimanna á þessu sviði en einskorðast ekki við þennan hóp.
Áhersla er lögð á samstarf sem tengist:

  • Aðferðum sem reynst hafa vil til að efla og bæta tengsl ólíkra menningarhópa í Evrópu og aukinni félagslegri þátttöku gegnum tungumálanám. 
  • Aðferðum sem reynst hafa vel í tungumála kennslu fyrir fólk með litla formlega menntun.
  • Aðferðum sem reynst haf vel í tungumálalkennslu fyrir fólk með sérþarfir

Nánari upplýsingar er að finna a vef framkvæmdastjórnar ESB og ýtarlega upplýsingar er að finna í fylgigögnum með auglýsingu eftir styrkjum hvers árs (Call for proposals).

Dæmi um verkefni.

Hægt er að skoða lista yfir samþykkt verkefni (Key Activity 2 – Compendium) árana 2007 og 2008 á vef EACEA.


Umsjón með áætluninni

Framkvæmdastjórn ESB hefur falið framkvæmdaskrifstofu ESB um mennta- og menningarmál (Education, Audiovisual and Culture Executive Agency, EACEA) umsjón með þveráætlunum.  Öll formleg umsjón (umsóknir, mat umsókna, samningsgerð) er á höndum þessarar skrifstofu.
Hlutverk Landskrifstofu er að miðla upplýsingum um áætlunina og aðstoða umsækjendur eins og kostur er.