Grunn- og framhaldsskólar geta sótt um að fá verðandi kennara frá einhverju ESB-landi til að aðstoða við kennslu. Skólarnir taka þá á móti aðstoðarkennurunum, en þeir eru styrktir frá sínu heimalandi í minnst 13 vikur mest 45, miðað við 12-16 klukkustunda kennsluskyldu á viku. Skólar aðstoði evrópsku aðstoðarkennarana við húsnæðisleit eftir megni.
Markmið
Markmiðið er að kynna fyrir nemendum tungu aðstoðarkennarans og auka skilning og þekkingu á menningu annars Evrópulands.
Sjá leiðbeiningabækling fyrir aðstoðarkennara og 'gistiskóla'
Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2012
Umsóknin skal vera útfyllt á ensku og skilað í tveimur eintökum til:
Landskrifstofu Menntaáætlunar Evrópusambandsins
Háskólatorgi v/Sæmundargötu
101 Reykjavík



