Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

Styrkir eru veittir til kennara á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi til að sækja fjölþjóðleg endurmenntunarnámskeið í frá einum degi í allt að 6 vikur. Einnig er möguleiki á að sækja um að fara og fylgjast með starfi í skóla í Evrópu. Upplýsingum um endurmenntunarnámskeið fyrir kennara og skólafólk í þátttökulöndum er að finna í námskeiðsgagnagrunni Comenius. Einnig er hægt að sækja námskeið að eigin vali í sínu fagi.
 

Skilyrði

Námskeið þarf að vera sniðið að evrópskum þörfum, vera fjölþjóðlegt og snúa að fagi kennara eða starfsfólks. Námskeið þarf að standa yfir í minnst 5 daga og vera haldið í öðru Evrópulandi. Sambærilegt námskeið má ekki vera hægt að finna í heimalandi.

Hér er hægt að leita eftir þeim námskeiðum sem eru í boði (á ensku).

Nánari útlistun á ensku - endurmenntun (.pdf, 68 kb)
 

Umsóknarfrestir

  • 15. janúar 2010 (fyrir námskeið frá 1. maí 2010)
  • 30. apríl 2010 (fyrir námskeið frá 1. september 2010)
  • 15.  september 2010 (fyrir námskeið frá 1. janúar 2011)

Umsóknum skal skilað undirrituðum á ensku (má einnig skila á íslensku) til:

Landskrifstofu Menntaáætlunar Evrópusambandsins
Háskólatorgi v/Sæmundargötu
101 Reykjavík

Einnig skal skila þeim sem viðhengi til Þorgerðar Evu Björnsdóttur, netfang: teva(hjá)hi.is.

Umsóknir og eyðublöð
 

Mat og uppgjör

Að loknu námskeiði ber þátttakendum að skila inn skýrslu þar sem ferðin er metin og gerð upp. Ferðareikningar/brottfararspjöld eiga að fylgja með. Athugið að spurningum má svara á íslensku. Athugið: Lokaskýrsluform verður sent til þátttakenda í tölvupósti.

Umsóknir og eyðublöð