Upplýsingar á vef ESB

 

Landskrifstofur Menntaáætlunar ESB

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

hnappur_nsn.jpg
Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins


 

Myndlistaskólinn í Reykjavík er fyrsti íslenski aðilinn til að hljóta vottun mannaskiptaverkefnis en það felur í sér viðurkenningu á fyrri verkefnum og vilyrði fyrir styrkveitingu næstu 4 árin 22.06.2010

Núna var í fyrsta sinn hægt að sækja um vottun mannaskiptaverkefna sem felur í sér vilyrði fyrir styrkveitingu næstu 4 árin.  Myndlistaskólinn í Reykjavík er fyrsti aðilinn til að hljóta slíka vottun sem veitt er á grundvelli mjög góðra verkefna og vandaðrar framkvæmdar.  Námsferðir til Evrópu hafa á undanförnum árum verið hluti af námi í Mótun og nemendur skólans hafa fengið þátttöku sína í slíkum verkefnum að fullu metna sem hluta af náminu.  Núna er reiknað með að evrópskt samstarf verði hluti af náminu í þremur deildum skólans, í Mótun-leir og tengd efni, Teikningu og Textíl.

Myndin er af verki eftir nemanda Myndlistaskólans í Reykjavík, Asa Shimada. Verkið heitir DOGWARE og er unnið fyrir fyrirtækið Royal Natural Snack á vorönn 2009. Krúsin er úr postulíni og glerungur gerður úr Fagradalsleir.

Með mannaskiptaverkefnunum hefur Myndlistaskólinn í Reykjavík myndað góð tengsl við ýmsa þekkta evrópska hönnuði, skóla og fyrirtæki og hafa þau tengsl leitt til ýmissa verkefna. Myndlistaskólinn er m.a. núna í samstarfi við þýsku postulínsverksmiðjuna Kahla um verkefni þar sem nemendur Mótunar hanna og þróa vöru fyrir verksmiðjuna. Nemendur hafa heimsótt Kahla og kynnt sér hugmyndafræði og starfsemi fyrirtækisins en í vetur mun verkefnið fara að mestu fram hér á landi og síðan í lok vorannar árið 2011 verða  2-3 nemendur valdir til að þróa verkefni sín enn frekar á verkstæði postulínsverksmiðjunnar í Þýskalandi.

Til baka...