Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB ásamt Mennta- og menningarmálaráðuneytinu stendur fyrir lokuðu alþjóðlegu málþingi varðandi stefnumörkun Evrópusambandis um færni til framtíðar (New Skills for New Jobs Agenda). Málþingið ber heitið „Facilitating cooperation between different stakeholders on future skills upgrading and skills matching for jobs“ og er haldið í Reykjavík þann 31. maí til 1. júní n.k. Fimmtán sérfræðingum frá jafn mörgum löndum var boðið til þess að taka þátt í málþinginu ásamt samstarfsaðilum verkefnisins „New Skills Network“ sem Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB stýrir.
Landskrifstofan hlaut fyrir skömmu 400 þúsund evra styrk frá Evrópusambandinu til að stýra þriggja ára 15 landa samstarfsverkefninu "New Skills Network". Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur um nokkurt skeið unnið að stefnumótun til framtíðar um með hvaða hætti hægt sé að stemma stigu við síauknu misræmi í færni fólks á evrópskum vinnumarkaði og framboði á störfum. Brýnt er að leita leiða til að meta þarfir atvinnulífs til framtíðar fyrir færni og þekkingu og að menntakerfið bregðist við til samræmis, svo tryggja megi samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs til framtíðar. Nú er unnið að áætlun um hvernig best sé að standa að framkvæmd þessarar stefnu og er New Skills Network verkefnið liður í þeirri framkvæmdaáætlun. Næstu 3 ár mun New Skills netverkið standa fyrir margs konar stefnumótum og 3 alþjóðlegum ráðstefnum um þemað.




