Markmið og lýsing verkefnis
Mjög breytilegt er hvernig og hversu mikið Evrópskir háskólar nýta sér upplýsingatækni í kennslu og öðru starfi. Ýmsar leiðir eru farnar og breytilegt er eftir aðstæðum hvaða best hentar og því ekki hægt að vísa öllum á sömu slóð.
Erasmus fjarnámssetrum er ætlað styðja við nýsköpun og þróun á upplýsingatækni í háskólanámi. Slík nýsköpun og þróun getur tengst öllum þáttum í ferlinu bæði tæknilegum lausnum og kennslufræði.
Verkefni gætu t.d. leitast við að:
- auka fjarkennslu milli samstarfsskóla til að koma til móts við stúdenta sem ekki hafi tök á að stunda hefðbundið skiptinám.
- fjarkennsla sé samofin öðrum Erasmus samastarfsverkefnum eins og námsbrauta- og námsgagnaþróun.
- stefnumótun háskóla leitist við aðsamþætta kosti og möguleika hefðbundinnar kennslu og fjarnáms/upplýsingatækni.
Verkefni sem fela í sér eftirtalin atriði og sýnt þykir að tengist samþykktri stefnu háskólanna njóta forgangs:
- Þróun og dreifing á lausnum til að koma á fót fjarkennslusetrum og viðhalda þeim.
- Framboð á fjarnámsefni með trausta stoðþjónustu og gæðaeftirlit.
- Þróun heilla námsleiða sem leiða til sameiginlegrar námsgráðu (double/joint degree) þar sem fjarkennsla er notuð á markmissan hátt til stúdent og kennara „skipta“.
- Aukið samstarf og miðlun þekkingar á milli stjórnenda á sviði upplýsingatækni.
Dæmi um verkefni á nánari upplýsingar er að finna á vef framkvæmdastjórnar ESB
Umsjón
Framkvæmdastjórn ESB hefur falið framkvæmdaskrifstofu ESB um mennta- og menningarmál (Education, Audiovisual and Culture Executive Agency, EACEA) umsjón með öllum miðstýrðum þáttum. Öll formleg umsjón (umsóknir, mat umsókna, samningsgerð) er á höndum þessarar skrifstofu.
Öll umsóknareyðublöð og önnur fylgigögn á að vera hægt að nálgast á vefsíðu EACEA.
Hlutverk Landskrifstofu er að miðla upplýsingum um áætlunina og aðstoða umsækjendur eins og kostur er.


