Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Study_in_Europe_logo
Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

 

 

 

Markmið og lýsing verkefnis

Markmið verkefna felast bæði í nýsköpun og þróun á eldra efni í öllum námsgreinum og á öllum námsstigum.

Samstarfið þarf að ná til minnst þriggja landa. Markmiðið er að ná fram auknum gæðum kennsluefnis með því að færa saman reynslu og sérþekkingu háskólana.
 

Verkefni sem fela í sér eftirtalin atriði njóta forgangs:

  • Þróunar á heilum námsleiðum á öllum námsstigum (grunn- framhalds- og doktorsnám) sem líkur með viðurkenndri sameiginlegri námsgráðu („double“ eða „joint degree).
  • Þróun á námsefni og námskeiðum sem tengjast endurmenntun í bókstaflegri merkingu (hagfræði fyrir hagfræðinga, félagsráðgjöf fyrir félagsráðgjafa etc.)
  • Námskeið í þverfaglegum greinum eða greinum þar mikilvægt er að hafa fjölþjóðlega nálgun.

Háskólanir þurfa síðan að bjóða sameiginlega upp á námið sem þróað er og í því þarf að felast kennara og/eða stúdentaskipti. Að loknu námi eiga stúdentar að hljóta sameiginlega námsgráðu eða viðurkenningu fyrir stök námskeið.

Nánari upplýsingar og dæmi um verkefni er að finna á vef framkvæmdastjórnar ESB
 

Umsjón

Framkvæmdastjórn ESB hefur falið framkvæmdaskrifstofu ESB um mennta- og menningarmál (Education, Audiovisual and Culture Executive Agency, EACEA) umsjón með öllum miðstýrðum þáttum.  Öll formleg umsjón (umsóknir, mat umsókna, samningsgerð) er á höndum þessarar skrifstofu.

Öll umsóknareyðublöð og önnur fylgigögn á að vera hægt að nálgast á vefsíðu EACEA.

Hlutverk Landskrifstofu er að miðla upplýsingum um áætlunina og aðstoða umsækjendur eins og kostur er.