Stúdentar sækja um að fara í starfsnám og um Erasmus styrk til síns heimaskóla.
Háskólarnir fá styrkúthlutun frá landskrifstofu og miðla síðan styrkjum áfram til sinna stúdenta.
Ekki þarf að vera samningur á milli heimaskóla og gestastofnunar (fyrirtæki, háskóli, stofnun etc.). Fæstir háskólar hafa komið sér upp formlegum samstarfsaðilum vegna starfsnáms. Stúdentar þurfa því oft að finna gestastofnunina sjálfir en það verður að vera í samráði við heimaskóla.
Hægt er að nýta ýmsar vefsíður til að leita að starfsnámsmöguleikum, t.d:
Ráðlegt er að hefja undirbúning að umsókn a.m.k. hálfu ári áður en umsóknarfrestur rennur út. Gott er að ráðfæra sig við alþjóðafulltrúa og kennara varðandi val á starfsnámi.
Umsóknarfrestur er til 1. mars 2010
Umsóknum er skilað til alþjóðaskrifstofu heimaskóla. Tekið er við umsóknum eftir að umsóknarfrestur er liðinn en umsóknir sem berast í tíma hafa forgang varðandi úthlutun styrkja.
Með umsókn þarf að skila
- Starfsnámssamningi (Training Agreement) (.doc, 80 kb) . Starfsnámssamningur er samningur á milli stúdents, heimaskóla og móttökuaðila. Í samningnum er tilgreint í hverju starfsnámið muni felast og hvaða færni stúdentinn á að öðlast með því. Ef stúdent uppfyllir skilyrði samningsins er það vottað af gestastofnun og heimaskóli er skuldbundinn til að meta starfsnámið sem hluta af námi. Ef starfsnámið er ekki metið til eininga þarf sérstaklega að tilgreina það í skírteinisviðauka (diploma supplement) við útskrift. Nánari upplýsingar um þetta fást hjá alþjóðafulltrúa.
- Námsferli. Stúdent þarf þó EKKI að hafa lokið 60 ECTS einingum eins og þegar um skiptinám er að ræða.
Svar við umsókn
- Svar við umsókn um styrk ætti að liggja fyrir í lok apríl.
- Mjög breytilegt er hvernig samskipti fara fram við gestastofnun og því erfitt að segja eitthvað um hvernær svar berst. Stundum sjá stúdentar alfarið um þau samskipti sjálfir, stundum fara þau í gegnum kennara eða alþjóðaskrifstofu.
Samningur og fyrri greiðsla styrks
- Áður en stúdent fer utan er gengið frá samningi vegna styrksins á milli stúdents og heimaskóla.
- Í „Erasmus Student Charter“ (.doc, 34 kb) sem er fylgiskjal með samningnum koma fram réttindi og skyldur stúdentsins.
- Stúdent fær greidd 70% af styrknum fyrir brottför.
Upphæð styrks skólaárið 2008-2009 (getur breyst á milli ára)
- 500 € ferðastyrkur
- 500 € á mánuði í uppihaldsstyrk (lágmarksdvöl er 3 mánuðir).
- Styrkurinn hefur ekki áhrif á greiðslur frá LÍN
Uppgjör og seinni greiðsla styrks
- Að námsdvöl lokinni þarf stúdent að fylla út rafræna lokaskýrslu.
- Stúdent þarf að skila inn staðfestingu frá gestastofnun þess efnis að dvölin hafi verið í samræmi við starfsnámssamninginn.
- Stúdent fær 30% af styrknum sé gengið frá ofangreindum atriðum.
- Hafi stúdent ekki sinnt starfsnáminu á meðan á dvölinni stóð eða komið fyrr heim en til stóð getur komið til endurgreiðslu á styrknum í heild eða að hluta til.
Erasmus starfsnám - umsókn fyrir skólaárið 2009-2010
Það er líka hægt að nálgast umsóknina á heimasíðum hvers háskóla.
Um er að ræða sama umsóknarform þó svo það sé birt á fleiri en einum stað.


