Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Study_in_Europe_logo
Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

 

 

 

Stefna Evrópusambandsins á sviði menntamála miðað að því að aðstoða aðildarríkin við að aðlaga menntakerfi sín að þörfum þekkingarsamfélagsins og að auðvelda þeim að bregðast við nýjum þörfum.

Nauðsynlegt er að takast á við þær breyttu aðstæður sem fylgja alheimsvæðingunni. Það þarf að mennta og endurmennta vinnuafl Evrópu í samræmi við nýjar þarfir. Menntakerfin þurfa að tryggja aðkomu háskólanna að því að búa til Evrópskt þekkingarsamfélag og að þeir hafi lykilhlutverk varðandi Lissabon markmiðin um vöxt og vinnu.
http://ec.europa.eu/growthandjobs/index_en.htm
 

Í tengslum við markmið framkvæmdastjórnar ESB varðandi umbætur í háskólaumhverfinu hafa verið skilgreind þrjár megin aðgerðir:

  • Námsbrauta umbætur: Þriggja námstiga kerfi (Bachelor-Master-Doctorate), færnismiðað nám, sveigjanlegt nám, viðurkenning á færni, stúdenta og starfsmannaskipti og að nám sé almennt skipulagt í samræmi við markmið Bologna (t)
  • Stjórnunar umbætur: Sjálfstæði og áreiðanleiki háskólastofnana, markvist samstarf og gæðaeftirlit.
  • Fjárhagslegar umbætur: Fjölbreytilegri tekjur háskólastofnana; skólagjöld, styrkir og lán, sanngirni og aðgengi, sókn í sjóði ESB.

Í maí 2006 gaf framkvæmdastjórn ESB út skýrslu, „Delivering on the modernisation agenda for universites: education, research and innovation“, þar sem sett voru fram 9 atriði sem þykja nauðsynleg varðandi þessar þrjár ofangreindu aðgerðir.

  1. Bæta aðgengi að háskólum í Evrópu
  2. Tryggja raunverulegt sjálfstæði háskólastofnanna og áræðanleika þeirra
  3. Hvetja til aukinn tengsla og skipulagðs samstarfs háskóla og atvinnulífs
  4. Mæta þörfum vinnumarkaðarins varðandi kunnáttu og færni
  5. Draga úr hallarekstri háskólastofnanna og ná fram skilvirkari nýtingu á fjármagni
  6. Efla þverfaglega nálgun í kennslu á rannsóknum
  7. Virkja þekkingu með tengslum við samfélagið
  8. Æðstu stjórnvöld komi að því að verðlaunum fyrir framúrskarandi færni
  9. Gera Evrópska mennta- og rannsóknarsvæðið sýnilegra og ákjósanlegra í heiminum
     

Forgangsatriði, gæðaeftirlit og stefnumótun

Háskólastofnunum er boðið að taka fullan þátt í „þekkingarþríhyrningnum“ (kennslu, rannsóknum og nýsköpun) og að taka þátt í verkefnum tengdum samstarfi háskólastofnana og fyrirtækja/stofnana sem er eitt af forgangsatriðum framkvæmdastjórnarinnar. Stofnun „Tæknigarðs Evrópu“ (European Institute of Technology) tengist þessu forgangsatriði en einnig öðrum almennari markmiðum.

Rík áhersla er lögð á samvinnu varðandi gæðaeftirlit og samræmd evrópsk viðmið um æðri menntun og prófgráður til að styrkja hið samevrópska menntasvæði.

Lissabon markmiðin og Bologna ferlið munu áfram hafa afgerandi áhrif á stefnumótun á háskólastigi.