hnappur_nsn.jpg
Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins


 

 

Upplýsingar á vef EACEA 


 
Rúmlega 68 milljónum króna úthlutað úr Menntaáætlun Evrópusambandsins til Leonardó mannaskiptaverkefna 22.06.2010

Landskrifstofa Menntaáætlunar Evrópusambandsins  hefur nú úthlutað því fjármagni sem til ráðstöfunar er árið 2010 á grundvelli umsókna sem bárust 5. febrúar síðastliðinn. Alls bárust 34 umsóknir þar sem sótt var um 942 þúsund evrur. Styrkupphæðinni, 433 þúsund evrum eða um 68 m.kr., var úthlutað  til 21 skóla, fyrirtækja og stofnana fyrir samtals 199 einstaklinga. 

Í umsóknarferlinu var  lögð sérstök áhersla á tvo forgangshópa, þ.e.

  • nemendur og starfsfólk starfsmenntaskóla og símenntunarstofnana
  • fólk sem stendur höllum fæti, s.s. ungt atvinnulaust fólk, fatlaðir einstaklingar og minnihlutahópar

Þessar áherslur báru góðan árangur sem birtist í fjölda umsókna fyrir þessa markhópa.  Sérstaklega ánægjulegt er að sjá verkefni sem hafa það að markmiði að gefa nemendum á starfsbrautum Menntaskólans í Kópavogi og Fjölbrautaskóla Suðurnesja  tækifæri til að taka þátt og fara í starfsþjálfun og kynnisferðir til Evrópu.

Við undirskrift samnings, fulltrúar Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB og Myndlistaskólans í Reykjavík.

Eftirtaldir aðilar hlutu styrk að þessu sinni:

Nemendur í starfsnámi – samtals 183.638 evrur fyrir 84 einstaklinga:
Menntaskólinn í Kópavogi
Kvikmyndaskóli Íslands
Myndlistaskólinn í Reykjavík
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Menntaskólinn í Kópavogi
Fræðsluskrifstofa rafiðnaðarins
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Verkmenntaskólinn á Akureyri

Fólk á vinnumarkaði– samtals 94.842 evrur fyrir 27 einstaklinga:
Námsferðir
Nínukot ehf
Listaháskóli Íslands

Leiðbeinendur og stjórnendur – samtals 155.028 evrur fyrir 88 einstaklinga:
Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum
Tækniskólinn, skóli atvinnulífs
Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða
Mímir- símenntun
Styrktarfélag Klúbbsins Geysis
Suðurlandsskógar
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Landbúnaðarháskóli Íslands
Rauði Krossinn
Landspítalinn
Háskóladansinn

Til baka...