„Það er mikil gerjun í þekkingariðnaði hér og sá stuðningur sem Evrópusambandið (ESB) veitir er dýrmætur,ekki síst nú á tímum,“ segir Margrét K. Sverrisdóttir, verkefnisstjóri verkefnisins New Skills Network sem Framkvæmdastjórn ESB styður við með það markmiði að efla samkeppnishæfni atvinnulífsins í Evrópu. Einkum er horft til þess að auka færni á ýmsum sviðum í þekkingariðnaði, í samstarfi við menntakerfi í viðkomandi löndum.
Fyrrnefnt verkefni er liður í stefnumörkun ESB á þessu sviði en því er stýrt af Landsskrifstofu Menntaáætlunar ESB á Íslandi.
Skrifstofan hlaut 400 þúsund evra styrk, ríflega 62 milljónir króna, frá ESB til þess að stýra verkefninu.
Um síðustu mánaðamót var haldin ráðstefna hér á landi í tengslum við verkefnið. Margrét segir hana hafa gengið vel og mörg athyglisverð mál verið rædd. „Hingað komu afar færir sérfræðingar á sviði vinnurannsókna og stefnumörkunar á þessum sviðum sem verkefnið nær til. Þetta er afar mikilvægt málefni og það getur skipt okkur Íslendinga, sem og aðra vitaskuld, miklu máli að hlúa að því sem vel er gert og efla þekkingu á nýjum sviðum atvinnulífsins.“
Ráðstefnugestir hlusta á ræður um hvernig efla má færni vinnuafls á markaði í Evrópu.
Breski hagfræðingurinn Rob Wilson, sem er sérfræðingur á sviði vinnurannsókna, flutti tölu og Svíinn Hasse Karlsson og Hollendingurinn Arnold Jonk fluttu einnig ræður. Jonk sat í sérfræðingahópi ESB sem vann skýrslu sem stefnumörkun ESB tekur mið af. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra flutti einnig ræðu auk þess sem Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra setti ráðstefnuna, sem ráðuneyti hennar bauð til. Þá flutti Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Marorku, erindi þar
sem hann gerði grein fyrir vaxandi mikilvægi hugverkaiðnaðar.
Heimild: Viðskiptablaðið 10. júní 2010
Þess má geta að menntamálaráðuneytið hefur þegar mótað stefnu varðandi stefnumörkun í menntamálum sem er í takt við þróunina í Evrópu ("Policy-making for lifelong learning - The Development of Education Policy in Iceland in the context of Europe").
Heimasíða verkefnisins: www.newskillsnetwork.eu







