hnappur_nsn.jpg
Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins


 

 

Upplýsingar á vef EACEA 


 
Tengslaráðstefna í Finnlandi 8. - 10. júní og námskeið fyrir verkefnisstjóra yfirfærsluverkefna í beinu framhaldi; 10. - 11. júní. 13.04.2010


TENGSLARÁÐSTEFNAN

Gæðakerfi í  starfsmenntun er þema  tengslaráðstefnu sem haldin verður í  Finnlandi 8. – 10. júní.  Yfirskrift ráðstefnunnar er  Tools for Quality Assurance in Vocational Education and Training og er um að ræða samstarfsverkefni Landskrifstofa Leonardo hluta Menntaáætlunar ESB á Norðurlöndunum og Írlandi.  Til ráðstefnunnar er boðið fulltrúum allra þátttökulanda Menntaáætlunar Evrópusambandsins og er markmiðið að mynda tengsl fyrir Leonardo yfirfærslu-, samstarfs- og mannaskiptaverkefni.

Á ráðstefnunni verður lögð áhersla á umjöllun um samevrópsk gæðakerfi í starfsmenntun, Framework for Quality Assurance in VET – EQAVET.  Markhópurinn er starfsmenntakennarar, náms- og starfsráðgjafar, símenntunarmiðstöðvar, fræðslustjórar fyrirtækja, verkefnastjórar, gæðastjórar og  skólameistarar.

Áhugasamir eru hvattir til þátttöku.  Ráðstefnugjaldið er 400 evrur og innifelur það gistingu, máltíðir og þátttöku í dagskrá ráðstefnunnar.  Skráning þátttöku er beint til Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB á Íslandi,  Leonardo áætlunarinnar, fyrir 12. maí.
Skáningarformið  (Pre-registration and Profile form).



Upplýsingar um ráðstefnuna – fylgiskjöl:

Boðsbréf - Invitation
Almennar upplýsingar - Practical information
Dagskrá – Programme

Mögulegt er að sækja um undirbúningsstyrk fyrir þátttöku í ráðstefnunni.  Upplýsingar um undirbúningsstyrk eru á www.lme.is/page/LeonardoUndirbuningsstyrkir

Upplýsingar fyrir umsókn undirbúningsheimsóknar – PV grant information


NÁMSKEIÐ FYRIR VERKEFNISSTJÓRA YFIRFÆRSLUVERKEFNA

Í framhaldi af tengslaráðstefnunni 10. - 11. júní verður haldið námskeið fyrir verkefnastjóra yfirfærsluverkefna, Training programme for peers.  Þetta er mjög spennandi námskeið sem skipulagt er af finnsku Landskrifstofunni og  finnsku Náms- og stefnumótunarstofnuninni  -  National Board of Education.  Þátttökugjaldið fyrir námskeiðið er 320 evrur og er þá gisting og matur innifalið.   Skráning á námskeiðið er rafræn og frestur til að skrá sig er til 30.april. Skráningarformið er rafrænt og slóðin er þessi:
https://www.webropol.com/P.aspx?id=420754&cid=85681671
Til baka...