Auglýst eftir umsóknum um námsheimsóknir
01.02.2010
Umsóknarfrestir um námsheimsóknir á skólaárinu 2010 - 2011 eru tveir. Annars vegar 31. mars 2010 fyrir fyrra tímabil, sem er september til febrúar og hins vegar 15. október fyrir seinna tímabil, sem er mars til júní 2011.
Nálgast má kynningarbækling með nánari upplýsingum um námsheimsóknirnar hér: Umsóknir skal prenta út og senda til Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB, umsjón: Ásta Sif Erlingsdóttir.




