Framvegis tekur þátt í Leonardo-verkefni ásamt fimm öðrum Evrópulöndum. Verkefnið ber heitið Providence sem er stytting á Providing competences (to workforce). Verkefnið gengur út á kynnast starfsemi samstarfsaðilanna í verkefninu með það að markmiði að hver samstarfsaðili noti þá þekkingu til þess að efla og auka gæði í þeirri starfstengdu menntun sem þeir bjóða upp á í sínu heimalandi.
Þátttakendur í verkefninu koma allir frá afar ólíkum fræðslustofnunum, t.d. símenntunarmiðstöðvum, verkmenntaskólum, vinnumálastofnunum, en hafa það sameiginlegt að bjóða fullorðnu fólki upp á símenntun og starfsmenntun. Afurð verkefnisins er heimasíða þar sem allir þátttakendur verkefnisins birta greinar þar sem borin eru saman menntakerfi og menntastofnanir þessara sex Evrópulanda.
Heimasíða verkefnisins:
http://www.iesbajoaragon.com/~providence/web/




