Framkvæmdarstjórn ESB hefur gefið út skýrslu (Green Paper)sem ætlað er að hvetja til umræðu um það hvernig hægt sé að hvetja ungt fólk að taka hluta af námi sínu erlendis. Framkvæmdastjórnin fer þess á leit við þá sem málið varðar að senda inn athugasemdir og tillögur fyrir 15. desember 2009.
Margir hafa áhuga á því að víkka sjóndeildarhringinn og prufa eitthvað nýtt með því að dvelja um nokkurra mánaða eða ára skeið í útlöndum við nám eða störf. Slík dvöl getur verið ákaflega jákvæð og gefið fólki vegarnesti sem endist því allt lífið.
Margar spurningar vakna hins vegar þegar hugmyndin um að flytjast á milli landa er tekin til alvarlegrar athugunar.
- Er ég tilbúin?
- Hvert á ég að fara?
- Hvernig á ég að undirbúa mig?
- Hvað þarf ég taka með mér?
- Hvernig á ég að finna húsnæði, vinnu, skóla, vini.....?
- Ef ég fer, hvernig get ég fengið það mesta út úr dvölinni?
Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar og Landsskrifstofa Menntaáætlunar ESB hafa nú gefið út rit er ætlað öllum þeim sem hugleiða hvort dvöl erlendis gæti verið einmitt það sem þeir vilja eða þurfa en eru samt ekki alveg vissir. Um er að ræða nokkrar æfingar þar sem fólk getur fengist við hvert í sínu horni eða í smærri og stærri hópum. Vonast er til að kennarar og náms- og starfsráðgjafar geti nýtt sér þær í starfi sínu.
Stefnumót við heiminn, æfingar fyrir fólk sem vill víkka sjóndeildarhringinn




