Upplýsingar á vef ESB

 

Landskrifstofur Menntaáætlunar ESB

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

hnappur_nsn.jpg
Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins


 

Getur heildstætt fjölþátta endurhæfingarkerfi stuðlað að aukinni starfsorku og þátttöku á vinnumarkaði? 07.09.2009

Mánudaginn 14. september verður haldin lokaráðstefna Social Return verkefnisins. Ráðstefnan hefst kl. 12.30 og verður haldin í Ketilshúsinu á Akureyri. Social Return er tveggja ára framhaldsverkefni stutt af menntaáætlun Evrópusambandsins. Ráðstefnunni er ætlað að kynna hugmyndafræðina á bakvið hið fjölþátta endurhæfingarkerfi Social Return sem og niðurstöður af innleiðingu kerfisins og stofnun Starfsendurhæfingarmiðstöðva víða á Íslandi og í samstarfslöndum verkefnisins, Finnlandi og Lettlandi. 

Hið fjölþátta endurhæfingarkerfi Social Return er stýrt af fagmönnum á öllum sviðum, svo sem heilsugæslu, sálgæslu, félagslegrar aðstoðar, menntunar og starfsþjálfunar. Markmið Social Return og stofnunar starfsendurhæfingarmiðstöðva var að bjóða fólki sem býr við skerta starfshæfni, altæka endurhæfingu og aðstoð við félagslega aðlögun í þeirra eigin nærsamfélagi, sem og að auka lífsgæði þátttakenda og fjölskyldna þeirra. Verkefnið á rætur sínar að rekja til Húsavíkur en hefur verið þróað um allt land og víða í Evrópu á undanförnum árum.

Allir þeir sem eru áhugasamir um eða starfa við starfsendurhæfingu eru boðnir velkomnir á ráðstefnuna. Ekkert ráðstefnugjald er en áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að tilkynna þátttöku með tölvupósti til Magnfríðar Sigurðardóttur, magna(hjá)starfsendurhaefing.com. Vinsamlegast tilgreinið nafn, starfsheiti, fyrirtæki/stofnun og netfang.

Frekari upplýsingar um Social Return verkefnið er að finna á heimasíðu þess, www.social-return.net.

Til baka...